Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Hallgerðargata 9A

105 Reykjavík

89.900.000 kr.

1.034.522 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2506168

Fasteignamat

84.250.000 kr.

Brunabótamat

59.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
86,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
Opið hús: 14. apríl 2026 kl. 17:45 til 18:15

Opið hús: Hallgerðargata 9A, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 15. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. apríl 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15.

Lýsing

GLÆSILEG ÍBÚÐ Í NÝLEGU LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ STÓRRI AFGIRTRI SVALAR VERÖND TIL SUÐ-VESTURS OG VÖNDUÐUM INNRÉTTINGUM.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 86,9 fm.

Um er að ræða fallega og rúmgóða íbúð á 1. hæð í steinsteyptu lyftuhúsnæði byggðu árið 2020 með vönduðum innréttingum.
Gengið er inn í anddyri og gang, strax til hægri er hjónaherbergið, en beint inn af ganginum er alrými með stofunni sem er opin í eldhúsið. Baðherbergið er til vinstri í ganginum og er barnaherbergið lengra inn af vinstra megin við hlið stofunnar. Mjög góð 11,5 fm. geymsla fylgir í kjallara sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Anddyri/gangur:  Innbyggður fataskápur og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Bjartar með parketi á gólfi, opið í eldhúsið, útgangur út á sér afgirta sólarverönd til suð-vesturs.
Eldhús: Falleg innrétting, gott skápa- og borðpláss, span helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, rúmgott með walk-in sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, gott skápapláss og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergin: Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi með útgangi út á veröndina, minna herbergið er einnig parketlagt með innbyggðum skápum.
Verönd: Um 25 fm. verönd fylgir eigninni og er útgangur bæði úr borðstofunni og einnig úr hjónaherberginu.
Geymsla: Sér 11,5 fm. geymsla fylgir í kjallara með mjög góðri lofthæð.
Sameign: Snyrtileg sameign og stigagangur, sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Stórt bílastæðahús er í kjallara.

Hin heimsþekkta arkitektastofa Schmidt/Hammer/Larssen hafði umsjón með allri hönnun hússins og var hvergi til sparað í þeim efnum. Eignin er byggð úr afar vönduðum byggingarefnum og eru m.a. allir gluggar úr áli og klæðning hússins úr lituðu áli og sementstrefjaplötum. Hljóðvist var verulega aukin og var gengið mun lengra í þeim efnum en alla jafna tíðkast í íslenskum byggingum, m.a. með því að hafa loftræstikerfi í öllum rýmum íbúðanna í húsinu og með aukinni hljóðeinangrun utan frá og á milli rýma innan byggingarinnar.

- Bílastæði í vönduðu bílastæðahúsi fylgir til afnota gegn vægu rekstrargjaldi.
- Vandað og viðhaldslétt lyftuhús á vinsælum stað á Laugarnesinu.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Ljósleiðari er komin inn í íbúðina. 
- Myndavéladyrasími.
- Mjög góð eign fyrir vandláta á eftirsóttum stað, miðsvæðis í Reykjavík.

Um er að ræða fallega íbúð í snyrtilegu umhverfi, úti­vist­ar­gildi svæð­is­ins er mikið og gott aðgengi er að strand­lengj­unni, Laugarnestanganum og Laug­ar­dal, göngu-, hjóla- og hlaupaleiðir, stutt er í leikvelli, leikskóla, skóla, sundlaug og ýmissa þjónustu. Hall­gerð­ar­gata teng­ist gömlum og rót­grónum hverfum á Teig­unum og Lækj­un­um.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: [email protected]

img
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. ágú. 2020
43.700.000 kr.
57.500.000 kr.
86.9 m²
661.680 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík