Upplýsingar
Byggt 1951
256,9 m²
9 herb.
1 baðherb.
5 svefnh.
Bílskúr
Lýsing
LF-fasteignasala/Lindin fasteignir og Þórdís Pála Reynisdóttir Löggiltur fasteignasali, s. 893-1319, [email protected] kynna:
Holtagata 5, 730 Reyðarfirði ÞINGHOLT.
Eignin Holtagata 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 217-7207, birt stærð 256.9 fm.
Lýsing eignar: Um er að ræða mjög skemmtilegt og vel staðsett einbýlishús með litlum bílskúr. Húsið er á 5 pöllum.
Gengið er inn í litla forstofu á aðalpallinum, þar fyrir innan er hol. Úr því er gengið í eldhúsið og inn úr því er rúmgott herbergi sem áður var borðstofa, möguleiki að breikka dyraopið og tengja borstofuna betur við eldhúsið.
Einnig er stofa og lítið herbergi á þessum palli.
Gengið er niður nokkrar tröppur í kjallarann þar sem geta verið 2 góð herbergi, þvottahús, baðherbergi og geymsla og útgengt í garðinn. Möguleiki að að gera þessi rými að aukaíbúð. Rýmið nýtist í dag sem geymslur og þvottahús.
Einnig er af aðalpallinum gengið upp á næstu hæð, þar er baðherbergi með góðri innréttingu og sturtuklefa möguleiki að setja stóran aflangan sturtubotn. 2 rúmgóð herbergi eru á hæðinni og útgengi á svalir. Á næsta palli er eitt rúmgott herbergi og 3 rými undir súðinni sem hafa verið nýtt sem geymslur. Unnið er að breytingu á þessum rýmum.
Í viðbót er lítið ævintýraloft sem væri brilljant leiksvæði fyrir börn, eða kósíhorn fyrir allan aldur eða bara geymslurými.
22,6 ferm bílskúr fylgir húsinu, einangrun í útveggjum og þaki hefur verið endurnýjuð og sett rakavörn og skúrinn klæddur að innan. Nýtt þakjárn og pappi er komið á staðinn og fylgir með við sölu.
Það er búið að múrviðgera og fullmála húsið að utan og lagfæra þakið og setja nýtt járn, pappa, þakrennur og niðurföll ásamt þakköntum.
Það á eftir að skipta um glugga, gluggarnir eru í dag nothæfir en gamlir en þeir hafa verið þéttir og málaðir og virka vel.
Rafmagn í húsinu hefur verið endurnýjað, bæð tafla og lagnir.
Það er búið að endurnýja bæði vatnslagnir og frárennslislagnir, nýir brunnar fyrir skólp og regnvatn einnig er nýtt vatnsinntak.
Hitakútur er gamall en í lagi.
Núverandi eigandi er búinn að gera aðalhæð (2 pallar) íbúðarhússins mjög snyrtilega með nýju parketi, nýjum innréttingum og gólfefnum ásamt baðherbergi.
Grunnskóli og leikskóli eru við sitthvort horn hússins og stutt í íþróttamannvirki og leiksvæði.
Einnig er stutt í miðbæ Reyðarfjarðar og að fallegri gönguleið sem liggur frá miðbæ Reyðarfjarða og til fjalls.