Upplýsingar
Byggt 2024
90,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 11. apríl 2026
kl. 14:00
til 15:00
Opið hús: Apalskarð 2 (107), 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 07. Eignin verður sýnd laugardaginn 11. apríl 2026 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
Lýsing
****SÝNI SAMDÆGURS - TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR ****
Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905 kynna:
APALSKARÐ 2 - íbúð 107 (ekki myndir af íbúðinni)
Húsið er staðsteypt 8 íbúða 4. hæða fjölbýlishús með lyftu og stæði í bílageymslu. Íbúðirnar eru með 2 og 3 svefnherbergjum. Öllum eignum fylgir stæði í bílageymslu.
Íbúð 107 er á 1. hæð (jarðhæð), skráð 90,4 fm, þar af 10,5 fm geymsla. 3ja. herbergja íbúð með séreignareit og sér stæði, B13.
Glæsileg ný íbúð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu, vel staðsett í göngufjarlægð frá leik- og grunnskóla í Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði.
Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna með flísalögn á baðherbergi/þvottahúsi.
Nánari lýsing skv. teikningu:
Forstofa: Með fataskápum. Fataskápar eru úr dökkri viðaráferð K547 melamine frá Parka ehf. Fataskápar eru í fullri lofthæð, lamir eru með ljúflokun og höldur eru „Black Aluminium L-200“..
Eldhús: Innrétting er vönduð á 2 veggjum. Innréttingin er frá Taumona, og er frá Parka ehf. Háskápar og neðri skápar eru úr dökkri viðaráferð K547 melamine, efriskápar eru ljósir 7045SU . Borðplata er HPL plast K209. Vönduð eldunartæki: Spanhelluborð er af gerð Electrolux Serie 600 EIL63443, bakaraofn af gerð Electrolux Serie 300 KOIGH04K og vifta/háfur eru af gerð Berdsen 40E 40x40 cm með kolasíu og fjarstýringu, frá Parka ehf.
Stofa: Af eldhúsi, rúmgóð og björt. Þaðan er útgengt á séreignareit.
2 Svefnherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum á heilum vegg. Barnaherbergi með tvöföldum fataskápum. Allir skápar vel innréttaðir með skúffum, hillum og fatahengi. Fataskápar eru úr dökkri viðaráferð K547 melamine frá Parka ehf. Fataskápar eru í fullri lofthæð, lamir eru með ljúflokun og höldur eru „Black Aluminium L-200“.
Baðherbergi: Flísalagt með möttum ljósum flísum „Limestone Ice 61x61. Með rúmgóðri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, "walk in" sturtu. Baðinnréttingar eru með dökkri viðaráferð K547 með tveimur skúffum undir vaski og speglaskáp yfir vaski, frá Parka ehf. Borðplata er HPL plast K209. Lamir eru með ljúflokun. Stæði fyrir þvottavél/þurrkara.
Geymsla: Í sameign í kjallara,10,5 fm.
Bílastæði: Í sameign í kjallara, merkt B13.
Þetta er falleg, afar rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með vönduðum innréttingum.
Húsið er einstaklega vel staðsett í Skarðshlíðarhverfinu þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða [email protected]