Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skipholt 49

105 Reykjavík

69.900.000 kr.

791.619 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2013272

Fasteignamat

66.450.000 kr.

Brunabótamat

43.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1963
svg
88,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 9. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Skipholt 49, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 9. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Domusnova og Vilborg kynna nýtt á einkasölu:
BJÖRT OG FALLEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ EINSTÖKU ÚTSÝNI Á 4.HÆÐ Í SKIPHOLTI 49.
VESTURSVALIR.
Íbúðin er á 4. hæð og er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 88,3 fm, þ.a. geymsla 4,4 fm.
Næg bílastæði á lóð.
Matvöruverslanir í göngufæri.
Falleg eign sem vert er að skoða.


Nánari lýsing:
Anddyri/hol mjög rúmgott. Góður fataskápur í holi.
Stofa/borðstofa er opin og björt með gluggum til vesturs, parket á gólfi. Útgengt er út rúmgóðar vestur svalir úr stofunni. Parket í stofu  var endurnýjað 2021.
Eldhús var endurnýjað 2020. Falleg innrétting með tækjaskáp, ofni og span helluborði og háf.  Innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi.  Ofn í eldhúsi endurnýjaður 2020 sem og parket. Einstakt útsýni úr eldhúsglugga í átt að Esjunni.
Hjónaherbergi  er rúmgott með dúk á gólfi.
Herbergi II með fataskáp og plastparketi á gólfi.
Fataherbergi er á svefnherbergisgangi. Þar eru góðar hillur og fatahengi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting og tengi fyrir þvottavél. Baðinnrétting, blöndunartæki og vaskur endurnýjað 2019.
Sér geymsla íbúðar er sameign.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Næg bílastæði á lóð.
Björt og vel skipulögð íbúð miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla þjónustu. 
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / [email protected]
Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað síðustu ár að sögn seljenda:
Íbúð:
Fataskápar í barnaherbergi endurnýjaðir 2019.
Vaskaborð og vaskur á baði endurnýjað 2019.
Eldhús 2020: Ný eldhúsinnrétting, raflögn í eldhúsi endurnýjuð sem og búnaður í rafmagnstöflu.  Öll tæki í eldhúsi endurnýjuð.
Parket á stofu og gang ásamt nýju gleri í svalahurð 2021.
Skipt um kopar(eir) vatnslagnir í stofu og settir nýjir ofnar des 2021.
Húsið:
Drenað 2004.
Elvarnahurðir á íbúðir í stigagang 2009.
Teppi í sameign 2010.
Nýjir gluggar á austurhlið og rúða í borðstofu 2011/2012.
Skipt um járn á þaki, hús múrviðgert og málað, svalahandrið lagfærð/endurnýjuð og skipt um glugga og gler á austurhlið hússins árið 2011. Sama ár var skipt um alla glugga á austur- og suðurhlið hússins 
Nýtt, hækkað handrið á svölum 2013.
Eldvarnarhurð milli húsa nr. 49-51 í kjallara 2017.
Túður á þak, rennur og fleira telur seljandi að hafi verið gert árið 2017.
Lagnafóðrun 2020: Stofnlagnir og lagnir frá eldhúsum, baðherbergjum, þvottahúsum og affalli hitaveitu og niðurföllum.
Kíttað á þaki 2022.

Falleg íbúð með einstöku útsýni frá eldhúsi til austurs og af svölum til vesturs.

Nánari upplýsingar veita:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Vilborg Gunnarsdóttir
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Vilborg Gunnarsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Vilborg Gunnarsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur