Opið hús: Blikahólar 10, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. apríl 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Til sölu mjög glæsilega mjög mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð í rólegu níu íbúða húsi við Blikahóla 10.
Allar breytingar hafa verið gerðar á mjög vandaðan hátt. Sjá teikningu í myndasýningu.
Íbúðin er á þriðju og efstu hæð með glæsilegu útsýni. Eldhús og stofa í einu opnu rými og þaðan útgengi út á góðar Suður-svalir.
Svefnherbergin eru 3 og eru vel rúmgóð með fataskápum. Gott skápapláss.
Nánari lýsing:
Komið inn á rúmgóðan gang með innbyggðum fataskáp. Gott svefnherbergi er strax til hægri. Innar á ganginum er hol og frá því barnaherbergi til hægri, hjónaherbergi til vinstri og gengið inn á baðherbergi. Frá holinu er einnig þvottaaðstaða.
Eldhúsið og stofan eru við enda gangsins og þar eru suðursvalir með frábæru útsýni.
Tveir inngangar eru í húsið. Annar er á jarðhæð sunnanmegin. Á jarðhæðinni er einnig á lokuðum sérgangi, stórt sameiginlegt þvottahús og geymslur.
Hinn inngangurinn er garðmegin að norðan á fyrstu hæð og við hann hjóla- og vagnageymslur.
Skipt verður um alla glugga íbúða og stigahúss á norðurhlið hússins núna sumarið 2026.
Þær framkvæmdir eru á kostnað seljanda.
Framkvæmdir undanfarin tvö ár:
Nýtt eldhús sem og öll tæki ný. Í innréttingu er hólf fyrir uppþvottavél og allar lagnir.
Baðherbergi endurnýjað. Öll tæki og flísar. Nýr gólfhiti. Walk in sturta. Opnanlegur gluggi.
Nýtt fallegt harðparket frá Birgisson. Nýjar hurðir frá Birgisson.
Nýir fataskápar í öllum herbergjum. Gott skápapláss.
Ofnar nýjir sem og Danfoss lokar. Tölvu/símalagnir inn í öll herbergi.
Allar raflagnir nýjar. Rofar, tenglar, ídráttur og töflubúnaður.
Íbúðin er öll nýmáluð.
Svalir endurnýjaðar. Svalagólf og skilveggur viðarklædd og málað ofl.
Hússjóður á mánuði er kr. 34.000-
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.