Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðlaugur H Guðlaugsson
Halldór Magnússon
Vista
raðhús

Báruklöpp 21

250 Garður

68.900.000 kr.

659.962 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516179

Fasteignamat

60.150.000 kr.

Brunabótamat

61.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
104,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu þriggja herbergja steypt raðhús við Báruklöpp nr. 21 í Garði, Suðurnesjabæ.

Byggingaraðili:
Bragi Guðmundsson ehf. -  er húsbyggjandi og ábyrgðaraðili verksins. Framúrskarandi og traustur verktaki með áratuga reynslu.


Um er að ræða vel skipulagt og vandað raðhús sem skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu.

Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.
Hol er parketlagt.
Stofa er parketlögð og hurð er út á verönd frá stofu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er vegleg innrétting með góðum tækjum, ofn, hellurborð og vifta.
Á baðhebergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er falleg innrétting og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, sturtuaðstaða stúkuð af með gleri og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru tvö, þau eru bæði parketlögð og skápar eru í báðum herbergjum.

*Gólfhiti er í öllum gólfum.
*Steypt innkeyrsla og stétt með snjóbræðslulögn
*Lóð er fullfrágengin með torfi og verönd er á baklóð.
*Sorptunnuskýli.

Stutt er í skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.

Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs 
S:  420-4000 / 863-4495 - [email protected]   

 

Stuðlaberg Fasteignasala

Stuðlaberg Fasteignasala

Hafnargata 20, 230 Keflavík
Stuðlaberg Fasteignasala

Stuðlaberg Fasteignasala

Hafnargata 20, 230 Keflavík