Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
svg
205 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 12. apríl 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Rökkvatjörn 10, 113 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 12. apríl 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu nýtt og glæsilegt endaraðhús á frábærum stað við Rökkvatjörn 10, í Úlfarsárdal. Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að utan og með álklæðninguHúsið skilast fullbúið að innan með vönduðum frágangi.

✅ Bjart og vel skipulagt hús
✅ 4 rúmgóð herbergi - möguleiki að bæta við herbergi í bílskúrnum.
✅ Vandaður frágangur:
      ⭐️ Fallegar innréttingar frá Nobilia - GKS
      ⭐️ Steinborðplötur frá REIN - Innfelld lýsing
      ⭐️ Gólfhiti og sérstakt loftskiptikerfi fyrir húsið
      ⭐️ Pledj snjalllýsing

Húsið skiptist með eftirfarandi hætti: Forstofa, stofa/alrými, eldhús, gestasnyrting, fjögur svefnherbergi, sjónvarpsstofa, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 205 fm, þar af er íbúðarrýmið 171 fm og bílskúrinn 34 fm.

⭐️ Kíktu í heimsókn, skoðaðu húsið í 3D ⭐️

Nánari lýsing:
Neðri hæð:       
Forstofa:
 Innangengt í bílskúrinn frá rýminu.
Stofa/alrými: Bjart og rúmgott rými með gólfsíðum gluggum. Rennihurð og gönguhurð út í garð.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Nobilia, steinborðplata, bakaraofn í vinnuhæð, AEG helluborð með innbyggðum gufugleypi og innbyggð uppþvottavél frá AEG. Gluggi í rýminu.
Gestasnyrting: Baðinnrétting með vask og steinborðplötu. Spegill með baklýsingu. Upphengt salerni. 
Bílskúr: 34 fm. Stór gluggi í enda bílskúrsins. Möguleiki að bæta við herbergi.  Gólfefni í bílskúr verður epoxyl.

Efri hæð:
Stigagangur: Teppalagður stigi með led-lýsingu. Geymslurými undir stiganum.
Sjónvarpsstofa: Staðsett í holi efri hæðar. Djúp gluggakista með leðursessu. Frá holinu er útgengt út 10,9 fm flísalagaðar svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi. Djúp gluggakista með leðursessu.
3 barnaherbergi: Fín stærð á herbergjunum. Rennihurð inn í eitt herbergið.
Baðhergi: Falleg baðinnrétting með steinborðplötu og góðu skápaplássi. Sturtuklefi með glerþil, led-lýsing í sturtuklefanum. Handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Góð innrétting utan um þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss. Vinnuborð með vaski. 
Lóð: Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu. Þrefalt sorptunnuskýli og búið að reisa skjólvegg á lóð. Timburskjólveggur kominn upp. Lóð tilbúin undir timburverönd / gras. Á baklóð hússins er gert ráð fyrir heitum potti. Búið er að legga ídráttarrör fyrir mögulega tengingu á heitum potti. Einnig er búið að leggja frárennslislögn að væntanlegu pottastæði. Búið er að leggja ídráttarör fyrir viðbótarhleðslustöð við sorptunnuskýli.

**ATH. Húsið verður afhent með fataskápum í forstofu hússins og svefnherbergjum. Fataskápar verða settir upp í samráði við kaupendur.

Helstu kostir við frágang:
** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar Rationel ál-tré.
** Gólfsíðir gluggar veita mikla birtu inn í rými neðri hæðar. Gólfhiti í öllum rýmum hússins.
** Fallegar innréttingar frá GKS. Steinborðplötu. Innfelld lýsing. Sérstakt loftskiptikerfi.

Byggingaraðili: Eiríkur og Einar Valur ehf.
Arkitekt: Einar Ólafsson, ARKITEO
Verkfræðihönnun: Vignir Jónsson, S.SAGA ehf.
Raflagnahönnun: Baldvin Ó. Gunnarsson, Voltorka ehf

Verktakafyrirtækið Eiríkur og Einar Valur ehf. hefur áralanga reynslu af framkvæmdum fyrir opinbera aðila, stórfyrirtæki og einstaklinga ásamt því að byggja atvinnu- og íbúðarhúsnæði á eigin vegum til fjölda ára. Fyrirtækið leggur áherslu á vandað húsnæði. Fyrirtækið býr yfir 50 ára reynslu á byggingarmarkaði.

Umhverfið:
Úlfarsárdalur er vinsælt og fjölskylduvænt hverfi í Reykjavík þar sem náttúra og þægindi fara saman. Stutt er í leik- og grunnskóla, þar á meðal Dalskóli, auk fjölbreyttrar íþróttaaðstöðu hjá Fram. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja um svæðið og tengjast meðal annars Úlfarsfell, sem býður upp á frábært útsýni og útivist.

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 

Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason // lögmaður / löggiltur fasteignasali // E-mail: [email protected] // Sími: 696-0226

 

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone