Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Vilborg G. Hansen
Vista
svg

136

svg

115  Skoðendur

svg

Skráð  9. apr. 2026

atvinnuhúsnæði

Stálhella 4

221 Hafnarfjörður

42.800.000 kr.

443.064 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2533732

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
96,6 m²
svg
1 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan BÆR, Ólafur Auður  kynna: gott atvinnuhúsnæði fyrir léttan iðnað við Stálhellu 4 hús B bil B6. Lofthæð 7 - 8,98 m og innkeyrsluhurðir 4,5 m að hæð. Vegna mikillar lofthæðar er hægt að gera milliloft. Húsið er í byggingu og verður tilbúið til afhendingar í maí 2026. 

Innkeyrsluhurðir eru 4,2 m að breidd og 4,5 m á hæð. Vöruhurð er úr lituðu áli og er með rafmagnsopnun.
Gönguhurðir eru bæði á norður og suðurhlið hússins. Á suðurhlið er gönguhurðin við hlið innkeysluhurðar.
Gluggar eru fyrir ofan gönguhurðina á suðurhluta. Þakgluggi er 5 fm. Gluggar eru smíðaðir úr timbri og áli. Gler er tvöfalt k-gler.
Kaffiaðstaða er 7,5 fm. Salerni er 6,4 fm. Ræstivaskur.
Engin vsk-kvöð er á húsnæðinu.
Rafmagnstafla
er sér fyrir bilið. 3ja fasa rafmagn.
Húsið er upphitað með gólfhita. Ef milliloft er sett er gert ráð fyrir ofnum á þeirri hæð.
Tæknirými: allir rekstraraðilar hafa aðgang af því, þar sem inntök eru ásamt innbrota- og brunaviðvörunarkerfi.
Möguleiki að vera með rafbílahleðslustöð við hvern eignarhluta í húsinu.
Lóð verður malbikuð en gróður á 3m breiðu belti sem snýr að götu. Gott athafnasvæði er í kringum húsið.

Byggingarlýsing:
Matshluti 02/hús B er fyrir léttan iðnað. Húsin eru stálgrindarhús á steinsteyptum undirstöðum. Megin burðarvirki hússins eru stálrammar sem ná þvert yfir húsið. Sökklar og botnplata eru steinsteypt og sökklar eru einangraðir að utan með 75mm einangrun. Útveggir eru úr viðurkenndum 100mm þykkum samlokueiningum með steinullarkjarna. Þak er jafnframt uppbyggt af 160mm steinullareiningum sem framleiddar eru fyrir þök og eru með trapizu löguðum ytri fleti (45mm ribbur) en að innan eru þær sléttar. Undir steinullareiningum eru stál Z prófílar eftir þörfum og í samræmi við burðarþolshönnun. Samlokueiningarnar bæði í veggjum og þökum eru byggðar upp af stálklæðningu að utan og innan með steinullareinangrunarkjarna á milli klæðninga. Innveggir er annarsvegar úr steinullareiningum eða léttir blikkstoðarveggir klæddir með gifsplötum. Allar klæðningar innanhúss eru í flokki 1. Gluggar eru álklæddir timburgluggar eða álprófílar með slitinni kuldabrú. Allt gler er tvöfalt einangrunargler. Í gólfsíðum gluggum er öryggisgler eins og reglur gera ráð fyrir. Reyklosun verður polykarbonat plastop í þaki. Húsið er hannað á grundvelli algildrar hönnunar og er miðað við að hindrunarlaust aðgengi verði fyrir hreyfihamlaða um allt húsið. Þröskuldar verða að hámarki 25mm á hæð. Gólf er staðsteypt og slípað.
Lóð:
Aðkoma að lóðinni er frá Stálhellu. Lóð verður malbikuð en gróður er á 3m breiðu belti sem snýr að götu. 13 bílastæði eru á lóðinni, þar af 1 fyrir hreyfihamlaða. Möguleiki skal vera fyrir rafbílahleðslustöð við hvern eignarhluta.
Vísað er í skilalýsingu fyrir frekari upplýsingar.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur [email protected]
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur [email protected] 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
5. Skipulagsgjald er greitt við úthlutun brunabótamats - greitt af nýjum eiganda.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

img
Auður Sigr Kristinsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Bær
Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
img

Auður Sigr Kristinsdóttir

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík

Auður Sigr Kristinsdóttir

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík