Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2006
114,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Opið hús: 16. apríl 2026
kl. 12:00
til 13:00
Opið hús: Hallakur 1, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 16. apríl 2026 milli kl. 12:00 og kl. 13:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og hlýleg 114,1 fermetra útsýnisíbúð á annarri hæð í litlu fjölbýli við Hallakur í Garðabæ. Eignin er byggð árið 2006, með rúmgóðu og björtu alrými og eldhúsi sem gengur i gegnum íbúðina, tveimur stórum svefnherbergjum og þvottahúsi innan íbúðar. Íbúðin sjálf er skráð 101,1 fermetrar og geymsla í kjallara 13 fermetrar. Frábær staðsetning, stutt í skóla, þjónustu og fallegar gönguleiðir.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected] sem einnig sýnir eignina.
Gengið er inn í íbúðina af opnum svalagangi. Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp og steinflísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn í alrými eignarinnar, þar sem eldhús er til hægri, stofa beint fram undan og lítill gangur til vinstri þar sem eru tvö rúmgóð herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Stofan er mjög rúmgóð, sérlega björt og með miklu útsýni. Svalir útfrá stofu eru óvanalega stórar, með nægu plássi fyrir grill og garðhúsgögn. Eldhús er til hægri frá inngangi, opið til stofu, með innréttingu á tveimur veggjum og eyju á hjólum. Innrétting er eikarlituð, með stállitum tækjum og grárri borðplötu með eikarkanti. Til vinstri frá inngangi er lítill gangur, afmarkaður frá stofu með vegg sem gengið er báðu megin við. Til hægri á gangi er stórt hjónaherbergi með stórum fataskáp til lofts og miklu útsýni, en til vinstri á gangi er minna herbergi, einnig með fataskáp, og með glugga að svalagangi. Á milli herbergjanna eru baðherbergi og þvottahús. Baðherbergið er flísalagt, veggir og gólf, með vegghengdu salerni, baðkari með sturtu og eikarlitri innréttingu. Þvottahúsið er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skápum og þvottasnúrum.
Á öllum gólfum er fallegt eikarparket, flísar á forstofu, baði og þvottahúsi.
Í kjallara er rúmgóð geymsla og hjólageymsla í sameign.
Húsið lítur vel út, hefur að sögn seljanda fengið gott almennt viðhald og virðist vera í ágætu ástandi. Loftræstistokkar hússins voru yfirfarnir fyrir 3-4 árum, skipt var um var um varmaskiptadælu fyrr á þessu ári
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign í hinu vinsæla Akrahverfi í Garðabæ. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Matvöruverslun í göngufæri. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu. Eign sem vert er að skoða.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. maí. 2007
26.350.000 kr.
28.900.000 kr.
114.1 m²
253.287 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026