Lýsing
Viltu fasteignir kynnir: Bjarta, fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á annari hæð með aukinni lofthæð og sérinngangi í nýlegu fjölbýli við Eskiás 2F, 210 Garðabæ. Skráð stærð eignar skv. FMR er 70,2 fm.
Eignin skiptist í: Forstofu, eitt svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa mjög rúmgóð með fataskáp, gott opið geymslupláss er undir stiga sem liggur upp í íbúðin, teppi á gólfi og stiga.
Eldhús er samliggjandi stofu, innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá NOBILIA, blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur og uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með útgengi út á svalir, parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga og góðri innréttingu, upphendu salerni og sturtu, tengi fyrir þvottavél, flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi með fataskáp frá Trésmiðju GKS og parketi á gólfi.
Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.