Lýsing
Eignin verður sýnd fimmtudaginn 16. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30, Arnar tekur vel á móti ykkur, verið hjartanlega velkomin.
Hólatún 12
Mjög sjarmerandi og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í s.k. keðjuhúsi, íbúðir á efri og neðri hæð, skipulag húss er þannig að stigagangur er við hlið íbúðar og engin íbúð liggur upp að þessari. , stór steypt verönd til vesturs með góðri útigeymslu og góðum skjólveggjum.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi, tvöfaldur hvítsprautaður fataskápur, gólfhiti.
Gangur, eldhús, stofa og svefnherbergin þrjú eru með vönduðu eikarparketi á gólfi.
Í hjónaherbergi og báðum barnaherbergjunum eru hvítsprautaðir fataskápar, öll herbergin eru afar rúmgóð.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þar eru gráar flísar á gólfi og stórum hluta veggja, hvít hreinlætistæki, vegghengt salerni, baðkar og handlaug, hvítsprautuð innrétting, gólfhiti.
Stofa og eldhús mynda eitt opið rými, í eldhúsi er hvítsprautuð innrétting með nýlegri vandaðri ljósri borðplötu, ljósar flísar eru á milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem fylgja með. Stállitur Siemens háfur, AEG keramikhelluborð og ofn. Nýlegur vaskur og vandað blöndunartæki. Úr eldhúsi er gengið út á rúmgóða steypta verönd með skjólveggjum og útigeymslu.
Þvottahús er með hvítsprautaðri innréttingu, gráum flísum á gólfi, góðir skápar og hillur á veggjum, borðplata með vaska. Rætt hefur verið um að mála hús að utan sumarið 2026 og er reiknað með að eigendur geri það sjálfir.
- Örstutt í skóla og leikskóla
- Matvöruverslanir í göngufæri
- Einn af fallegri golfvöllum landsins rétt hjá
- Stutt í góðar gönguleiðir og útivistarparadísina í Kjarnaskógi með nálægum gönguleiðum
- Hleðslustöð í sameign á enda bílastæðis
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.