Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Langahlíð 6 íbúð 101

603 Akureyri

79.900.000 kr.

473.341 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2148550

Fasteignamat

64.750.000 kr.

Brunabótamat

70.170.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
168,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Langahlíð 6 - 101, 5 herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi með bílskúr og sér geymslu í kjallara. Heildarstærð eignar er 168,8 m², þar með talinn bílskúr. Staðsetningin er afar eftirsótt, í nálægð við leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði Þórs.

Eignin skiptist í forstofu, gang, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi, auk sérgeymslu í kjallara.

Forstofa
er með svörtum náttúruflísum á gólfi og hvítmáluðum fataskáp.
Gangur er parketlagður með gegnheilu parketi. Á gangi er þrefaldur, hvítmálaður fataskápur ásamt bekkplötu milli skáps og veggs.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með gegnheilu parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi með svörtum náttúruflísum. Innréttingin er hvít, upphengt nýlegt salerni og baðkar með sturtutækjum. Opnanlegur gluggi.
Eldhús er með svörtum náttúruflísum á gólfi og hvít lakkaðri innréttingu með hvítum flísum milli skápa. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, auk þess sem bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými. Þar er parketlagt með gegnheilu parketi og útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Bílskúr er skráður 28 m² að stærð. Hann er einangraðurmeð steyptu gólfi og vegghillum. Út í hann liggur rafmagn en ekkert rennandi vatn. 
Sér geymsla er í kjallara, skráð um 8,2 m² að stærð. Gengið er úr forstofu niður í kjallara.

Annað:
- Gólfhiti í forstofu, eldhúsrými og baðherbergi.
- Húsið var málað að utan sumarið 2020 og gert við múr um svipað leyti.
- Pappi á þaki var endurnýjaður fyrir nokkrum árum. Hitakapall var settur í þakrennu árið 2023.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Fyrir framan bílskúr er steypt og hellulagt bílaplan.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. mar. 2024
57.450.000 kr.
73.000.000 kr.
168.8 m²
432.464 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone