Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
svg

534

svg

371  Skoðendur

svg

Skráð  14. apr. 2026

einbýlishús

Rauðagerði 56

108 Reykjavík

214.900.000 kr.

690.775 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2035547

Fasteignamat

160.150.000 kr.

Brunabótamat

136.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
311,1 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali, kynna: Rauðagerði 56, 108 Reykjavík – glæsilegt og afar rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr, samtals 311 fm. Um er að ræða fjölskylduvæna og vel skipulagða eign á eftirsóttum stað í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected]

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Komið er inn um aðalinngang í rúmgott flísalagt anddyri með fataskáp.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, korkur á gólfi.
Þvottahús með nýrri innréttingu.
Sjónvarps/seturými með nýju gegnheilu parketi.
Baðherbergi með sturtu, handlaug, saunu og aðgengi út á verönd.
Geymsla er inn af þvottahúsi.
Aðgengi að bílskur inn af þvottahúsi.

Efri hæð:
Á efri hæð er bjart og opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með góðri lofthæð.
Frá stofu er útgengt á svalir/pall.
Eldhús er vel skipulagt með flottu útsýni og góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III er með dúk á gólfi.
Baðherbergi er upprunalegt, flísar að hluta ásamt viðarklæðningu.

Um er að ræða stórt og reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum með góðu skipulagi þar sem svefn- og samverurými eru vel aðskilin. Húsið býður upp á mikla möguleika fyrir stórar fjölskyldur eða þá sem vilja rúmgott heimili með sveigjanlegu rými.

Staðsetning:
Rauðagerði er rólegt og gróið hverfi í 108 Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og útivistarsvæði. Hverfið er vinsælt hjá fjölskyldum og þykir einstaklega barnvænt.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík