Lýsing
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, kynna Eiðismýri 30, fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í húsi fyrir 60 ára og eldri, á besta stað á Seltjarnarnesi, þaðan sem stutt er í verslun og þjónustu. Um er að ræða tveggja herbergja 72,9 fermetra íbúð á annarrihæð í lyftuhúsi á þessum vinsæla og eftirsótta stað.
Yfirbyggðar og aflokaðar svalir til suðurs sem eru ekki inn í birtum fermetrum.
Töluvert mikil sameign er með húseign, setustofa er á hæðinni framan við íbúð, stór samkomusalur í kjallara með billard borði, borðtennisborði, æfingatækjum og setustofu. Matsalur/veislusalur í eigu Seltjarnarnesbæjar þar sem íbúar geta leigt undir einkasamkvæmi.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning
Stærð íbúðarinnar er 72,9 fm samkvæmt HMS og er geymslan 6,7 fm þar af.
Nánari lýsing á eign:
Aflokað stigahús er framan við íbúð sem að er nokkuð bjart og er setustofa á miðri hæðinni við lyftuhús.
Komið er inn í forstofu/hol sem að er með innbyggðum fataskápum.
Úr forstofu er gengið í önnur rými íbúðar.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með gluggum til suðurs, útgengt er á yfirbyggðar og aflokaðar suður svalir úr stofu og nýtast svalir vel sem framlenging af stofu, fallegt útsýni til suðurs af svölum.
Eldhús er hálf opið inn í stofu og er ágætis eldri innrétting með efri og neðri skápum úr hvít/beyki, gluggi er úr eldhúsi út á stigagang.
Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, gluggi úr herbergi vísar út á svalir.
Baðherbergi er rúmgott með sturtuklefa, ágætis innréttingu undir vask með hirslum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Sérgeymsla í sameign í kjallara 6,7 fm að stærð. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla er í kjallara. Útgengt er á lóð við hlið hjólageymslu.
Parket er á gólfum íbúðar.
Hér er falleg og björt eign á ferðinni á vinsælum stað fyrir 60 ára og eldri. Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á [email protected] eða Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali með tölvupósti á [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.