Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
fjölbýlishús

Maltakur 9

210 Garðabær

139.900.000 kr.

903.747 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2311441

Fasteignamat

122.100.000 kr.

Brunabótamat

98.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
154,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 22. apríl 2026 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Maltakur 9, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 22. apríl 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega falleg lúxusíbúð á 2.hæð (efstu hæð) á enda í góðu litlu fjölbýlishúsi í Akrahverfinu í Garðabæ. Húsið er lyftuhús en aðeins er ein hæð upp frá aðalinngangi hússins upp á hæðina þar sem íbúðin er á. Í kjallara er góð lokuð bílageymsla og þar er einnig einstaklega góð 22m2 geymsla sem fylgir íbúðinni. Eignin skiptist í: forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi, fataherbergi og sólríkar útsýnissvalir sem snúa í suðvestur og ná útsýni yfir Garðabæinn og út að sjó. í eigninni er einskonar hjónasvíta og er annað baðherbergið þar inn af ásamt fataherbergi. Stutt er út á stofnbrautir, verslun, bakarí, leikskóla, skóla og fjölbrautaskóla. Dásamlegar gönguleiðir í kring. Húsið stendur ekki við stofnbrautir og því sérlega rólegt umhverfi í kringum húsið. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]


Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 154,8m2 og þar af 22,1m2 geymsla í sameign. Svalir eru með svalalokun og eru 18m2. íbúðin sjálf er skráð 132,7m2. 

Nánari lýsing:
Komið er að húsinu á jarðhæð, skráð 1.hæð. Þar er lokaður stigagangur með mynddyrasímakerfi sem leiðir upp að efri hæð hússins, 2.hæð. Íbúðin er á enda og er því með góða glugga í 3 áttir. Lyfta gengur á milli hæða allt frá bílakjallara upp á 2.hæðina. Sérinngangur er af hálflokuðum svalagangi að íbúðinni og engin umgangur er fram hjá íbúðinni frá öðrum íbúum. Gler lokun er að hluta á svalaganginum sem skýlir vel fyrir veðri og vindum. 
Forstofa: Komið er inn í forstofuna um sérinngang. Þrefaldur fataskápur sem nær upp í loft er í forstofunni og fallegar flísar á gólf.
Opið alrými með góðum gluggum: setustofa, borðstofa og eldhús. 
Borðstofa:
Fyrir framan eyjuna er rúmgóð borðstofa með stórum suður gluggum og parketi á gólfi.
Stofa: Setustofan er sérlega björt og rúmgóð með gluggum í tvær áttir. Setustofan er í opnu rými með eldhúsinu og borðstofunni. Parket  er á gólfi. Gengið er út frá stofunni á stórar sólríkar suðuvestursvalir (18m2).
Eldhús: Í eldhúsinu er bæði mjög gott skápapláss og mikið vinnupláss á eldhúsbekkjum. Innrétting er á einn góðan vegg og nær upp í loft með efri og neðri skápum, ljósar flísar eru á vegg á milli skápa. ofn er í vinnuhæð. Stór eyja með helluborði, góðu vinnuplássi og mikið af skúffum skilur á milli eldhús og borðstofu. Parket er á gólfi.
Baðherbergi 1: Aðal baðherbergið er út frá alrýminu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum grábrúnum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Baðkar er í enda rýmisins. Stór innrétting er bæði undir vaskaborði og á vegg við hliðina á stórum spegil. Mjög gott borðpláss er við vaskinn. Á vegg á móts við baðherbergis innréttinguna er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Stórt vinnuborð, góðir skápar og vinnuvaskur. Salernið er upphengt. Hiti í gólfi.
Hjónasvíta: (svefnherbergi, baðherbergi og fataherbergi/skrifstofa)
Hjónaherbergi:
Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með góðum gluggi og panoramaglugga fyrir ofan rúm sem snýr í suðaustur og heypir fallegri birtu inn i rýmið. Parket er á gólfi.
Baðherbergi 2: Inn af hjónasvítunni er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með grábrúnum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Sturta er í rýminu. Stór innrétting er bæði undir vaskaborði og á vegg við hliðina á stórum spegil. Mjög gott borðpláss er við vaskinn. Salernið er upphengt. Opnanlegur gluggi og hiti í gólfi.
Fataherbergi: Fataherbergi er einnig inni í hjónasvítunni. Fataherbergið er í dag aðeins nýtt að hluta sem slíkt og að hluta sem skiptiaðstaða/skrifstofa. Hægt er að setja fataherbergið aftur upp eins og því var skilað í upphafi með meira af hengi og hillum (það sem var fjarlægt er til og aðeins þarf að setja það upp). Parket er á gólfi. Opnanlegur gluggi. 
Svefnherbergi 2: Auka svefnherbergið er mjög rúmgott með fjórföldum fataskáp sem nær upp í loft og parket er á gólfi.
Geymsla: sér geymsla fylgir íbúðinni inn af bílageymslunni, tvöföld hurð er inn í geymsluna og því mjög gott að flytja þar inn stóra sem minni hluti. stærð geymslunnar er 22,1m2. Hægt að nýta sem geymslu eða vinnu/hobby rými. 
Bílakjallari: Stæðið í bílakjallara er merkt B03 og er eitt í sér rými og því ekki klesst ofan í aðra bíla. Innstunga er í bílastæðinu þar sem hægt er að hlaða til dæmis rafmagnsbíl og ætti þá einnig að vera auðvelt að setja upp hleðslustöð ef þörf er á. Innstungan er tengd inn á rafmagnsmæli íbúðarinnar. 
Bílaþvottaaðstaða: er í bílakjallara
Hjóla og vagnageymslu: er að finna í sameign. 

Falleg og vel skipulögð íbúð í rólegu hverfi. Aðeins einn eignandi er af íbúðinni frá því húsið var byggt. 

Annar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]

img
Berglind Hólm Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
RE/MAX
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
img

Berglind Hólm Birgisdóttir

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. nóv. 2009
40.250.000 kr.
35.000.000 kr.
154.8 m²
226.098 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone

Berglind Hólm Birgisdóttir

Skeifunni 17, 108 Reykjavík