Tökum á móti gestum í bílakjallara, hringið í Jason í síma 7751515
Lýsing
Heimasíða Orkureitsins
Orkureitur - Suðurlandsbraut, íbúð 605 er 4-5 herbergja 173,5 fm íbúð á 6. hæð með 23,2 fm geymslu í kjallara og bílastæði í kjallara merkt B025
Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi.
Svefnherbergi II er 11,4 fm að innra máli og er með fataskápum.
Sjónvarpsherbergi sem hægt er að breyta í svefnherbergi.
Skrifstofa sem snýr til norðurs, einnig hægt að breyta í svefnherbergi.
Baðherbergi með sturtu. Flísar á gólfi
Eldhúsið er með glæsilegum innréttingum frá GKS með eyju. Safír Harmonía. Steinn á borðplötu.
Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Alrýmið er með gluggum til norður og suður og þaðan er hægt að ganga út á sólarsvalir sem eru 8,8 fm að stærð.
Sérgeymsla er 14,9 fm. (K2-115)
Innréttingaþema er Safír Harmonía. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: [email protected]
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: [email protected]
Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 899-5533, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.