Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Sóltún 9

105 Reykjavík

91.900.000 kr.

895.712 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2250553

Fasteignamat

87.850.000 kr.

Brunabótamat

63.790.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2000
svg
102,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 23. apríl 2026 kl. 15:00 til 15:30

Opið hús: 23. apríl 2026 kl. 15:00 til 15:30.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: 

Fallega og vel skipulagða 102,6 fermetra 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftufjölbýli með svalalokun og stæði í lokaðri bílageymslu á þessum vinsæla stað miðsvæðis í borginni. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þvottaherbergi og geymslu innan íbúðar. Sérgeymsla eignar er í kjallara ásamt auka geymslurými í sameign og stæði í bílageymslu þar sem ráð er gert fyrir hleðslustöð. Næg bílastæði og góð aðkoma. Lyftuhúsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Stutt í alla þjónustu, verslanir ofl. 

Nánari lýsing og skipting eignar:
Forstofa: flísalögð og með vönduðum fataskápum.
Stofa: rúmgóð, björt og parketlögð. Útgengi á svalir til suðurs.
Svalir: Rúmgóðar til suðurs með svalalokun og harðviðarflísum.
Eldhús: Vönduð viðarinnrétting með steini í borðplötu og lýsingu.
Borðstofa: Borðstofurými öðru megin við eldhús.
Hjónaherbergi: með vönduðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: með vönduðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt hátt og lágt, baðkar með sturtu. Upphengt klósett. Vandaðir skápar, vaskskápur með steini og spegill með lýsingu.
Þvottaherbergi: Borðplata með vaski og veggskápar. Tengi fyrir þvottvél og þurrkara.
Geymsla I: Innan íbúðar með skápum og hillum.
Geymsla II: Í kjallara: 5,1 m2 að stærð og er í uppgefnum fermetrum íbúðar.
Geymslurými í kjallara: Búið er að afmarka geymslurými í sameignar rými. Um er að ræða 2-3 m2 gólfflöt í læstu rými.
Bílastæði: Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og hægt er að setja hleðslustöð fyrir rafbíl.
Sameign: Í sameign er stórt herbergi sem notað hefur verið fyrir húsfundi og fleira af íbúum. Hjólageymsla er með hjólahengjum. Hefðbundin sameign er öll snyrtileg.

Myndavélasími er í andyrri ásamt því að flestar hurðir í sameign eru með sjálfvirkum opnara. Öll lóð og aðkoma snyrtileg.
Íbúðin er vel staðsett miðsvæðis og stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur [email protected].


 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. feb. 2021
54.050.000 kr.
57.200.000 kr.
102.6 m²
557.505 kr.
16. sep. 2020
59.350.000 kr.
56.700.000 kr.
102.6 m²
552.632 kr.
22. maí. 2017
40.550.000 kr.
54.900.000 kr.
102.6 m²
535.088 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone