Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1994
225,96 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Nýtt á skrá! Grófarsmári 14 Kópavogi. Glæsilegt fjölskylduhús með möguleika á 4-5 svefnherbergjum og miklu útsýni.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt og bjart 6 herbergja parhús á tveimur hæðum á eftirsóttum stað við Grófarsmára 14. Húsið er byggt árið 1994 og er alls 226 fermetrar að stærð (þar af um 30 fermetrar óskráðir). Bílskúr er 24,4 fermetrar að stærð. Virkilega fallegt útsýni er frá alrýmum yfir Kópavogslæk, út á sundin, til fjalla og víðar. Útgengi á stórar svalir með miklu útsýni frá alrými og útgengi á baklóð/verönd frá neðri hæð.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnu árin. Má þar m.a. nefna að þak var endurnýjað árið 2023 og húsið málað að utan árið 2020. Pallar og skjólveggir voru gerðir á árunum 2019-2023 og gróðurhús sett upp árið 2024. Eldhús var endurnýjað árið 2024 og gestasalerni árið 2026. Þá er búið að endurnýjað gólfefni (harðparket) fyrir u.þ.b. 6 árum síðan. Auk þess var inngangshurð í hús og bílskúr endurnýjað árið 2017 og báðar svalahurði árið 2019.
Húsið skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestasnyrtingu, stóra stofu sem rúmar setustofu og borðstofu, rúmgott eldhús og útgengi á stórar svalir. Á neðri hæð eru 2 stór svefnherbergi (annað með fataherbergi), sjónvarpsstofa (sem er hægt að breyta í svefnherbergi), baðherbergi, þvottaherbergi, stórt fjölskyldurými (sem hefur verið nýtt sem unglingaherbergi - gluggalaust en með loftræstingu) og útgengi á verönd í bakgarði. Mikil lofthæð er yfir efri hæð hússins og falleg gluggasetning sem gefur húsinu mikinn sjarma. Bílskúr er afar snyrtilegur með inngangshurð við hlið forstofuhurðar.
Hellulagt plan er fyrir framan hús með snjóbræðslu og rafhleðslustöð. Falleg lóð með verönd fyrir framan hús og verönd í bakgarði. Einnig er hellulögð verönd í skjóli undir svölum og nýlegt gróðurhús. Lóðin er að mestu afgirt og með tyrfðum flötum. Staðsetning hússins er afar góð í rólegri barnvænni götu. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í mikið íþróttastarf.
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Svefnherbergi I: Er staðsett inn af forstofu. Flísar á gólfi og gluggi til suðurs.
Gestasnyrting: Var endurnýjað árið 2026. Flísar á gólfi, innrétting við vask og salerni.
Stofa: Er stór með harðparketi á gólfi og aukinni lofthæð með innfelldri lýsingu. Fallegir gluggar til norður með glæsilegu útsýni. Stofa rúmar setustofu og borðstofu (jafnvel sjónvarpsrými ef rými niðri væru öll nýtt sem svefnherbergi). Útgengi á stórar svalir með fallegu útsýni sem snúa inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2024. Fallegar hvítar eldhúsinnréttingar með tækja- og búrskápi. Flotað gólf. AEG bakaraofn, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur með frysti og spansuðu helluborð. Gluggar til norðurs og austurs. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru stórar með fallegu útsýni. Útgengi frá stofu og eldhúsi.
Neðri hæð: Steyptur stigi með fallegu teppi tengir hæðir.
Sjónvarpshol: Með harðparketi á gólfi og útgengi á baklóð til norðurs.
Svefnherbergi II: Er stórt með harðparketi á gólfi, fataherbergi og gluggum til norðurs.
Fataherbergi: Með harðparketi á gólfi og innréttingum.
Svefnherbergi III: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og glugga til austurs.
Fjölskyldurými/Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi og loftræstingu. Hefur verið nýtt sem svefnherbergi en er gluggalaust.
Baðherbergi: Er flísalagt með baðkari með sturtutækjum og flísalagðri sturtu með glerhurð. Stór innrétting við vask og gluggi til austurs.
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af baðherbergi II. Parket, vinnuborð, vaskur, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útgengi á lóð.
Bílskúr: Er 24,4 fermetrar að stærð, snyrtilegur, upphitaður, heitt og kalt vatn.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á fjölskylduvænum stað í Grófarsmára líkt og greinir nánar hér að ofan. Glæsilegt fjölskylduhús sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected].

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. júl. 2017
53.300.000 kr.
82.500.000 kr.
195.7 m²
421.564 kr.
15. nóv. 2007
38.380.000 kr.
63.000.000 kr.
195.7 m²
321.921 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026