Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Gnoðarvogur 82

104 Reykjavík

74.900.000 kr.

761.179 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2023559

Fasteignamat

69.550.000 kr.

Brunabótamat

46.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
98,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 27. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Gnoðarvogur 82, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905, kynna í einkasölu
Fallega, bjarta, mjög mikið endurnýjaða og vel skipulagða 98,4 m2 íbúð á neðstu hæð í fjórbýlishúsi með sér inngangi við Gnoðarvog 82, 104 Reykjavík. 
Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt og ber þess merki hvað varðar skipulag og litaval utanhúss.


- Íbúðin er skráð skv. HMS 98,4 fm þar af 5,2 fm sér geymsla innan íbúðar.
- Kjallarahæð, lítið niðurgrafin
- Sér inngangur. Má hafa gæludýr 
- 3ja herbergja - tvö rúmgóð svefnherbergi

- Eldhús fallega endurnýjað 2024
- Baðherbergi fallega endurnýjað 2024
- Gólfhiti lagður um alla íbúð ásamt nýrri gólfhitastýringu
- Allt raflagnaefni hefur verið endurnýjað, þar á meðal ný rafmagnstafla

- Nýtt skólp lagt fyrir íbúðina út að nýlegum brunni við götu; íbúðin er með sérlagnir, óháð öðrum íbúðum í húsinu
- Nýjar vatns- og fráveitulagnir lagðar
- Öll neysluvatnsrör í íbúðinni eru ný að þvottahúsi 
- Gólfefni endurnýjað
- Gluggum og glerjum var skipt út í allri íbúð að einum undanskildum

- Geymsla innan íbúðar.

Eignin skiptist í: Forstofu, hol, eldhús/stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi,og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parketlögð með fatahengi og skóskáp. 
Hol: Af forstofu er parketlagt mjög rúmgott hol. Þaðan er gengið inn í flest allar aðrar vistarverur eignarinnar, utan eins herbergjanna og þvottahús.
Eldhús/borðstofa/stofa: Parketlagt bjart alrými með stórum gluggum og útgengi á hellulagða verönd.
Eldhús með L-laga eikar/hvítri innréttingu með efri og neðri skápum/skúffum, ofn í hæð, örbylgjuofn, nýlegri uppþvottavél. Eyja með helluborði og skúffum.
Svefnherbergi: Af stofu. Parketlagt, rúmgott með skáp. Snýr út í garðinn.
Svefnherbergi: Af holi. Parketllagt, rúmgott með stórum skáp. 
Þvottahús: Af svefnherbergi. Málað gólf og innrétting með skúffum fyrir vélar í hæð. 
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum. Mjög rúmgott. Vaskinnrétting, "walk in" sturta og upphengt salerni. Gluggi er á baði.
Geymsla: Af holi. Parketlögð með hillum.

Lóð: Sameiginleg stór 651 fm lóð sem snýr með garðinn til suðvesturs.

Virkilega falleg og vel viðhaldin eign á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í öll skólastig; leik-grunn og framhaldsskóla og alla helstu þjónustu í Skeifunni ofl.

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða [email protected]

Skv. seljanda hafa eftirtaldar framkvæmdir átt sér stað á húsinu s.l. ár: 
Öll íbúðin.
●     Íbúðin var flotuð.
●     Gólfhiti lagður um alla íbúð ásamt nýrri gólfhitastýringu í skáp í forstofu.
●     Nýtt parket lagt á alla íbúðina.
●     Alrými stækkað með opnun veggjar.
●     Eldhús og hjónaherbergi fært.
●     Allt raflagnaefni hefur verið endurnýjað, þar á meðal ný rafmagnstafla (um 3–4 ára). Allir tenglar og rofar eru nýir ásamt ýmsum breytingum á raflögnum með fjölgun rofa, tengla og öryggja í töflu.
●     Nýtt skólp lagt fyrir íbúðina út að nýlegum brunni við götu; hún er með sérlagnir, óháð öðrum íbúðum í húsinu.
●     Nýjar vatns- og fráveitulagnir lagðar.
●     Öll neysluvatnsrör í íbúðinni eru ný en þau liggja að tengipunkti í þvottahúsi. Rör frá þvottahúsi að hitakompu eru um 10-15 ára gömul.
●     Búið er að skipta út hurðum og körmum.
●     Búið er að skipta út fataskápum sem ná upp í loft í báðum svefnherbergjum og skápalýsing í hjónaherbergi sett upp.
●     Innbyggð kommóða sett upp í holi (innrétting frá Brúnás).
●     Gluggum og glerjum var skipt út í allri íbúð að einum undanskildum sem er sprunginn og verður skipt út samkvæmt viðhaldsáætlun hússins.
●     Nýleg útidyrahurð ásamt karmi.
●     Hiti hefur verið settur í útitröppur að íbúðinni og einnig að efri hæðum.
●     Nýjar CAT5 lagnir fyrir sjónvarp í stofu og tölvur í auka svefnherbergi sem nú er einnig notað sem skrifstofa.
●     Þvottahúsinnréttingu skipt út og með rými fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
●     Þvottahúsgólf lakkað og sett niðurfall í gólf.
Baðherbergi
●     Nýjar flísar á veggjum og gólfi.
●     Ný walk in sturta, sturtugler og innbyggð blöndunartækjum frá Grohe.
●     Ný baðherbergisinnrétting með nýrri handlaug og blöndunartækjum frá Grohe.
●     Nýtt upphengt klósett.
●     Spegill með innbyggðri lýsingu, rofa og fjarstýringu.
●     Nýr handklæðaofn með sérlögn; notuð eru mjó rör til að lágmarka hljóð frá vatnsflæði.
Eldhús
●     Eldhúsinnréttingu var skipt út fyrir innréttingu frá Brúnás. Um er að ræða L-laga innréttingu með stórri eldunareyju.
●     Innbyggður bakaraofn og örbylgjuofn frá AEG.
●     Eyja er með háfi, spanhelluborði og tenglum í baki.
●     Sérsmíðuð borðplata frá Fanntófel á innréttingu og eyju.
●     Efri skápar með innbyggðri lýsingu.
●     Ný innbyggð uppþvottavél frá Electrolux (2025).
●     Vaskur og blöndunartæki frá Mora.
●     Allar lagnir í eldhúsi (vatns- og raflagnir, ásamt fráveitulögnum) eru nýjar.


 

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. des. 2023
61.200.000 kr.
56.500.000 kr.
98.4 m²
574.187 kr.
8. jan. 2016
27.550.000 kr.
26.500.000 kr.
98.4 m²
269.309 kr.
20. jún. 2007
18.210.000 kr.
20.000.000 kr.
98.4 m²
203.252 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone