Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
146,4 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 26. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega, vel skipulagða og nokkuð mikið endurnýjaða efri sérhæð á útsýnisstað í Kópavoginum. Íbúðin er með sérinngangi og 4 svefnherbergjum.

Glæsilegt útsýni er frá íbúðinni yfir í Fossvoginn og út á Kópavoginn og í áttina að Nauthólsvík. Þrennar svalir eru á íbúðinni, tvennar sem snúa í suður út frá stofu og eldhúsi og einar sem snúa í norður út frá hjónaherbergi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara innan íbúðar en einnig er sameiginlegt þvottaherbergi í kjallaranum sem íbúðin hefur aðgang að.

Bílskúrsréttur er á lóðinni og á íbúðin innkeyrsluna hægra megin við húsið. Fyrir nokkrum árum var vestur og norðurhlið hússins múrviðgerð og máluð en búið er að klæða suður og austurhliðar. Húsið hefur fengið reglubundið og gott viðhald. Allar svalahurðar hafa verið endurnýjaðar. Íbúðin er staðsett í göngufæri frá Álfhólsskóla og íþróttahúsinu Digranesi. 


Nánari lýsing: 
Keyrt er upp að húsinu inn um innkeyrslu hægra megin við húsið. Sú innkeyrsla fylgir íbúðinni og inn af henni er bílskúrsréttur íbúðarinnar. Búið er að skipta niður lóðinni sunnan við húsið og á íbúðin þar sérafnotareit. Gengið er upp að íbúðinni upp steyptar tröppur utan húss að fyrstu hæð og þaðan er gengið inn um sérinngang inn að íbúðinni. 

Nánari lýsing íbúðar
Komið er inn um sérinngang inn í flísalagða forstofu með fatahengi og geymslurými. Frá forstofunni er gengið upp steyptan nýlega teppalagðan stiga sem er innan íbúðar upp að aðalrými eignarinnar.  Efst á stigapallinum er forstofuhol með parketi á gólfi. Gluggar er í rýminu sem hleypa fallegri birtu inn. 
Stofa /borðstofa er inn úr forstofuholinu inn í stórt samliggjandi stofurými sem rúmar setustofu og góða borðstofu. Opið er yfir í eldhúsið frá stofurýminu. Fallegir gólfsíðir gluggar eru í tvær áttir. Útgengt er út á tvennar svalir til suðurs. Gegnheilt parket er á gólfi. 
Eldhúsið er rúmgott með  góðu skápaplássi. Eyja er á milli eldhúss og setustofu. Gegnheilt parket er á gólfi. Alno innrétting með olíuborinni borðplötu, AEG ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, gashelluborð og viftuháfur yfir.
Baðherbergið er mjög rúmgott með bæði baðkari og sturtu. Stór innrétting er undir vaski og við hlið spegils. Góð innrétting er í kringum þvottavél og þurrkara . Flísar eru á gólfi og á hluta af veggjum. Góður gluggi með opnanlegu fagi. Salernið er upphengt. 
Herbergin eru fjögur í eigninni.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskáp með hvítum rennihurðum. Útgengt er á norðursvalir með glæsilegu útsýni.
Tvö barnaherbergi eru í eigninni, bæði sambærileg af stærð með parketi á gólfi.
Fjórða herbergið er lítið og nýtist vel sem vinnuherbergi, ungbarnaherbergi eða geymsla. Herbergið er nýtt í dag sem búr/geymsla/þurrkherbergi.
Geymsla í sameign er geymsla sem fylgir íbúðinni. 

Í sameign er sameiginlegt þvottaherbergi þar sem hver íbúð hefur aðgang fyrir sína vél. Sér bílskúrsréttur fylgir íbúðinni hægra megin við húsið á lóð. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. maí. 2022
60.850.000 kr.
88.500.000 kr.
146.4 m²
604.508 kr.
13. sep. 2018
47.750.000 kr.
58.700.000 kr.
146.4 m²
400.956 kr.
27. feb. 2015
32.300.000 kr.
37.250.000 kr.
146.4 m²
254.440 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone