Opið hús: Helluvað 13, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 08. Eignin verður sýnd sunnudaginn 26. apríl 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Um er að ræða fallega og rúmgóða 4 herbergja endaíbúð á 4 hæð í góðu lyftuhúsi. Svalir til suðurs með glæsilegu útsýni til suðurs að Bláfjöllum yfir Heiðmörk og Elliðavatn.. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Birt stærð eignar er 111,3 fm, þar af er íbúðahluti 100,2 fm og geymsla 11,1 fm.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Íbúðin skiptist í forstofu, í opnu rými er eldhús og borðstofu / stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús, geymslu og stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri: Með fataskáp, skóskáp og spegli.
Eldhús: Opið inn í stofu, falleg svört innrétting með granít borðplötu, flísar milli skápa, uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn, helluborð, háfur, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, útgengi út á stórar suður svalir (8,8 fm), parket á gólfi. Fallegt útsýni.
Hjónaherbergi: Rúmgott, svartir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Með svörtum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Með svörtum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað. Með góðri innréttingu, speglaskápur, upphengt salerni, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, flísalagt í hólf og gólf.
Gangur: Parket á gólfi.
Þvottahús: Tengi fyrir vask, þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Geymsla: Í sameign er 11,1 fm geymsla (merkt 0035).
Bílageymsla: Eigninni fylgir stæði í bílageymslu (merkt B03). Lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð (leiga).
Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Hús og lóð: Helluvað 7-21. Húsið er fimm hæða fjölbýli með lyftu og lokaðri bílageymslu og er byggt árið 2007. Í Helluvaði 13 eru átta íbúðir, tvær íbúðir á hæð. Eitt húsfélag er starfandi fyrir Helluvað 13-21. Sameiginleg 7.327 fm gróin lóð.
Innréttingar / ljós: Allar innréttingar eru filmaðar svartar að innan og utan (ekki innrétting á baðherbergi). Öll ljós fylgja með.
Staðsetning: Smellið hér.
Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi:
* Baðherbergi hefur verið endurnýjað.
* Parket slípað og litað.
* Allar innréttingar eru filmaðar svartar að utan sem innan (ekki baðherbergisinnrétting).
Rúmgóð og falleg eign á góðum stað í Norðlingaholti. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóli og leikskóli í göngufæri. Frábært útivistarsvæði í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala, í síma 893 3276 eða [email protected].
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.