Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
fjölbýlishús

Furugrund 76

200 Kópavogur

65.900.000 kr.

795.894 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2060935

Fasteignamat

60.500.000 kr.

Brunabótamat

42.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
82,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna: Bjarta og fallega 3ja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi við Furugrund 76 í Kópavogi. Íbúðin er endurnýjuð  að hluta á smekklegan og vandaðan hátt. Eignir er vel staðsett á þessum vinsæla og fjölskylduvæna stað í Kópavogi. Eign sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni.

Forstofa: Komið er inn í forstofu/hol, innbyggður fataskápur, harðparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, útgengt á sólríkar svalir, harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með nýlegum tækjum, bakaraofni, helluborði og gufugleypi. Nýlegar borðplötur, vínilflísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýlegum innbyggðum fataskáp með sérsmíðuðum rennihurðum, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og handklæðaofni. nýleg innrétting innrétting og góðir speglaskápar. Tengi er fyrir þvottavél á baði. Vínilflísar á gólfi.
Geymsla er á jarðhæð ca. 6fm.
Sameign: Á jarðhæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi.

Endurbætur á íbúð síðustu ár:
2020 - Gólfefni endurnýjuð
2020 - Borðplötur í eldhúsi og tæki endurnýjuð ásamt gólfefnum
2022 - Baðinnrétting og gólfefni endurnýjuð
2025 - Nýr skápur í hjónaherbergi

Framkvæmdir hjá húsfélagi síðustu ár:
2024 - Sameign tekin í gegn. Stigagangur teppalagður og málaður.
2021 - Drenviðgerðir hjá Furugrund 74-76
2021 - Furugrund 72-76 málað og múrviðgert ásamt því að skipt var um gler á gluggum þar sem þurfti.
2021 - Furugrund 72-76 gert við þak, skipt um nagla og málað.

Nánasta umhverfi: Snælandsskóli og Leikskólinn Furugrund, Grænatún ásamt íþróttasvæði HK. Stutt er í verslun og alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni er Fossvogurinn með sinni einstöku fegurð. Í Fossvoginum má finna frisbígolfvöll, blakvelli, fótboltavelli, leiksvæði og íþróttahús.

Eignin Furugrund 76 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-0935, birt stærð 76.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Geymsla í sameign er ekki inni í skráningu FMR, ca 6fm.

Gólfefni á baði og í eldhúsi eru vínilflísar sem lagðar eru ofan á eldri flísar. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

img
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Gimli fasteignasala
Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
img

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Skipholt 35, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. feb. 2017
25.250.000 kr.
35.100.000 kr.
76.8 m²
457.031 kr.
19. des. 2012
17.200.000 kr.
19.900.000 kr.
76.8 m²
259.115 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Skipholt 35, 105 Reykjavík