Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Rauðarárstígur 32

105 Reykjavík

61.900.000 kr.

996.779 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2010847

Fasteignamat

54.950.000 kr.

Brunabótamat

31.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1942
svg
62,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. apríl 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Rauðarárstígur 32, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd föstudaginn 24. apríl 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Lind fasteignasala og Rútur Örn Birgisson, lgfs., kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annarri hæð við Rauðarárstíg í miðbæ Reykjavíkur.

Íbúðin er 62,1 fm að stærð og fylgja henni tvær sérgeymslur í risi sem eru samtals 4,9 fm.

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð bæði að innan og utan á undanförnum árum. Árið 2022 voru allir gluggar í íbúðinni endurnýjaðir. Gluggar á austurhlið hússins eru með hljóðeinangrandi þreföldu gleri. Samkvæmt upplýsingum frá eiganda var þak hússins endurnýjað árið 2020 og gluggum í risi skipt út. Dren var lagtárið 2020. Múrviðgerðir á ytra byrði hússins  fóru fram á árunum 2011–2012.

Að innan var íbúðin endurnýjuð árið 2017, en þá var lagt nýtt gólfefni á alla íbúðina, eldhúsið opnaði inn í stofu, eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð, baðherbergi stækkað og allt endurgert. Þá voru settir nýir fataskápar í herbergi og rafmagn endurnýjað í eldhúsi og baðherbergi.
Sameiginlegur inngangur er einnig út í bakgarð sem snýr í vestur. Þar nýtur sólar frá hádegi og fram á síðdegi á sumrin.

Nánari lýsing:
Forstofa: Með eldvarnarhurð út í sameign, harðparketi á gólfi og gengið er þaðan inn í öll rými íbúðarinnar.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi og glugga til suðurs.
Eldhús: Harðparketi á gólfi og falleg innrétting með efri og neðri skápum. Spanhelluborð og ofn, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél frá árinu 2017. Gluggi til suðurs.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi, góðum fataskápum og glugga til norðausturs.
Herbergi: Bjart herbergi með fataskápum og glugga til norðausturs.
Baðherbergi: Sandsteinn á gólfi og flísalagðir veggir, upphengt salerni, smekkleg baðinnrétting með góðu skápaplássi, flísalögð sturta með gler hurð og handklæðaofn.
Sérgeymslur: Tvær geymslur á geymslulofti í risi, samtals 4,9 fm.
Sameiginlegt þvottahús: Í risi þar sem hver íbúð er með sína þvottavél (þvottavél getur fylgt með eftir samkomulagi).

Í framkvæmdasjóði Rauðarárstígs 32–34 eru til rúmar 11.000.000 kr. Fyrirhugað í sumar er að endursteypa tröppur við inngang hússins með hitalögn, gera upp útidyrahurðir og skipta um handrið. Kostnaður greiðist úr framkvæmdasjóði.

Eignin er á eftirsóknarverðum stað í miðbæ Reykjavíkur, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, Mathöllina á Hlemmi, Sundhöll Reykjavíkur, Klambratún og þá fjölbreyttu afþreyingu sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

Allar nánari upplýsingar veitir Rútur Örn Birgisson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 869-1031 eða á netfanginu [email protected]

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. okt. 2016
20.250.000 kr.
28.000.000 kr.
62.1 m²
450.886 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone