Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Laugavegur 145

105 Reykjavík

58.900.000 kr.

1.154.902 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2511884

Fasteignamat

50.450.000 kr.

Brunabótamat

30.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1935
svg
51 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson og Betri Stofan fasteignasala kynnir: Laugaveg 145. Einstaklega vönduð og falleg stúdíóíbúð í risi, merkt: 0402 á 4. hæð í lyftuhúsi. 

Innra skipulag. 
Í íbúðinni er alrými, þ.e. stofa, borðstofa og eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Hurðir og innréttingar eru hvítar. Íbúðin er í raun rúmlega 54 fermetrar að grunnfleti, en skráð 41 fm.

Íbúðin: 
Forstofa: Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús: Innrétting er frá HTH Ormsson. Tæki eru frá Electrolux eða sambærilegt. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Er opin við eldhús og útgengi á svalir til suðurs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Innangengur úr alrými. Parket á gólfi. Nýbúið er að setja þakglugga. 
Baðherbergi: Baðinnrétting frá HTH Ormsson. Hreinlætistæki frá Grohe eða sambærilegt. Salerni er upphengt. Gólf flísalögð ásamt hluta baðherbergisveggja. Gólfflísar 20x20 Carnaby Street Beige frá Álfaborg og veggflísar verða 10x20 Carnival of Venezia glans frá Álfaborg.
Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign hússins merkt 0009.

Húsið: Hluti hússins er endurgerð á eldra húsi þar sem innra skipulag hússins er breytt og hæð bætt ofan á og hinn hluti hússins er viðbygging úr forsteyptum samlokueiningum. Nýlegt stigahús með pallalyftu og aðalinngang á 1. hæð og bakinngang úr garði inn í kjallara og hjólageymslu sameinar báða hluta hússins. Lítill inngarður er við baklóð hússins þar sem aðgengi er í kjallara, hjólageymslu og stigahús ásamt sorptunnuskýlum utandyra. Aðalinngangur er í nýrri viðbyggingu við austurhlið hússins. Húsið er ýmist steinað og/eða filtað og málað að utan.

Umhverfið: Laugavegur 145 er miðsvæðis og í göngufæri við alla helstu þjónustu og þá menningu sem miðbær Reykjavíkur býður uppá. Um 100m eru niður á Hlemmtorg þar sem fyrirhuguð er mikil umbylting í þeim tilgangi að stækka miðbæinn og auka menningu og afþreyingu á svæðinu. Sú breyting mun minnka almenna umferð bíla og strætisvagna við Laugaveg 145 en með fyrirhugaðri miðstöð borgarlínu mun þetta svæði verða einn helsti tengipunktur samgangna á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni. 

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 [email protected] löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. feb. 2021
19.350.000 kr.
38.900.000 kr.
41 m²
948.780 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík