Upplýsingar
Byggt 1996
101,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
ATH. EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA.
Borg fasteignasala kynnir til sölu: Laufrimi 10a, neðri hæð. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og verönd, enda íbúð með gluggum á þrjár hliðar.
Stofa og eldhús í opnu rými, þrjú svefnherbergi. Góð fjölskylduvæn eign á þessum vinsæla stað í Grafarvogi. Afhent við kaupsamning.
Samkvæmt HMS er íbúðin skráð 101,8 m2. Húsið er steinhús byggt árið 1996.
Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi
Forstofa flísalangt gólf og fataskápur.
Alrými - Stofa og eldhús þar er útgengi út á verönd og afgirta lóð. Markísa fylgir með.
Stofan er björt og rúmgóð með gluggum á tveimur hliðum.
Eldhúsið er opið með borðkrók og stórum glugga til vesturs.
Svefnherbergin þrjú eru öll með fataskápum og parkett á gólfum.
Baðherbergi með dúk á gólfi og flísum kringum baðkar. Innrétting við vask og stór veggskápur. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi/geymsla er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi í þvottaherbergi ásamt vaski og hillum.
Gólfefni er parket og gólfdúkur, flísar á forstofu.
Sérgeymsla á sameignargangi.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sérhúsi á lóð.
Sérbílastæði merkt íbúðinni.
Húsinu að Laufrima 10-14 hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin. Fyrir skemmstu, árið 2024 var framkvæmdum á húsi og þaki, gluggum og hurðum lokið.
Mjög góð staðsetning hvað varðar skóla, leikskóla og er öll helsta þjónusta í göngufæri, þ.e. verslanir, apótek, heilsugæsla, strætó og fleira.
Nánari upplýsingar veitir
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447, tölvupóstur [email protected].
Victor Levi R. Ferrua, Löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222, tölvupóstur [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3.Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.