Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
einbýlishús

Hjallatangi 17

340 Stykkishólmur

76.900.000 kr.

547.331 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2335935

Fasteignamat

68.750.000 kr.

Brunabótamat

87.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
140,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Trausti Fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna nýtt glæsilegt einbýlishús við Hjallatanga 17 í Stykkishólmi.

Um er að ræða 140,5fm hús á einni hæð með björtu og opnu alrými þar sem rúmast stofa, borðstofa og eldhús með góðu aðgengi að lóð, þremur svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi með þvottaaðstöðu. Stór forstofa tengir saman íbúðarrými og 35,9fm bílskúr. Góð lofthæð er í allri eigninni auk þess sem gert er ráð fyrir innfelldri lýsingu.
Húsið stendur á 871fm lóð. Við byggingu hússins var miðað við að halda náttúrulegu landslagi við húsið.
---SELJENDUR SKOÐA SKIPTI --
Eignin er fullfrágengin á byggingarstigi 4, matsstigi 7 og getur afhenst við kaupsamning.
Nánri upplýsingar veitir Þorbjörn Geir í síma 8955198, eða [email protected]


NÁNARI LÝSING:
Húsið er reist með SIP einingum, sem eru sterkbyggðar og vel einangraðar samlokueiningar, samsettar úr OSB plötum og pólýstýren. Innra byrði veggja er klætt tveggja tommu rafmagnsgrind, tveggja tommu ull, 12 mm krossviði og 12 mm gifsi. Loft eru klædd með einföldu gifslagi, en veggir með tvöföldu. Að utan er húsið klætt með gráum fiber cement panel frá Struktúr.
Þak: Bárujárn á þaki og þakskeggi frá Struktúr.
Gluggar og hurðir: PVC frá Struktúr. Útihurð frá Struktúr. Hvít eldvarnarhurð milli bílskúrs og húss frá BAUHAUS. Innihurðar eru hvítar frá Egill Árnason.
Bílskúrshurð: frá Struktúr.
Gólfefni Forstofa: Flísar 75x75 cm, gráar "Ragno" frá Egill Árnason. Stofa, eldhús, gangur og svefnherbergi: Eikarlitað harðparket "Classen" frá Egill Árnason.
Baðherbergi:Flísar 75x75 cm, grábrúnar "Ragno" frá Egill Árnason á gólfi og veggjum. Bílskúr: Flotað gólf.
Baðherbergi: Þýskt blöndunar -og sturtutæki. Inbyggður klósettkassi frá Grohe, Duravit klósett. Í sturtu er glært gler með álprófíl.  Spegilskápur er með lýsingu og innrétting úr eik.
Eldhús:  IKEA METOD eldhúsinnrétting með gráum BODBYN frontum og KLINGSTORP höldum. EKBACKEN borðplata. Vaskur, blöndunartæki, ofn og útdraganlegur háfur.
Rafkerfi og hitastýring: Gólfhitastýring (sér stýring í hverju rými) frá Danfoss. Innstungur og rofar frá Vilma.
Lóð: Lóð afhendist eins og hún er í dag, með mulningi í bílaplani.

Annað:
Auðvelt er að bæta við rúmgóðu svefnherbergi með glugga í bílskúrnum ef þvottaaðstaða yrði inni á baði. 
Nægt pláss er inni á baðherbergi til þess að koma þar inn veglegu baðkari.
Það er búið að gera ráð fyrir heitum potti í skjóli bakvið hús og þar eru allar leiðslur tilbúnar. Auðvelt er að saga út fyrir hurð úr baði beint út þar sem pottur er.


Hér er á ferðinni frábært tækifæri til þess að eignast glæsilegt nýtt einbýlishús á frábærum stað í Hólminum fagra. 
Hafðu samband við Bjössa til að skoða því hér er sjón sannarlega sögu ríkari!

Nánri upplýsingar veitir Þorbjörn Geir í síma 8955198, eða [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone