Opið hús: Hafnarbraut 15, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 10. Eignin verður sýnd sunnudaginn 26. apríl 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Húsið var byggt árið 2019. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 90,4 m2 þar af er íbúðin 81,4 m2 og geymslan 9 m2. Í sameigninni er rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing
Forstofan er opin með parketi, innbyggðum fataskápum og dyrasíma með myndavél.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til, innréttingar á tvo vegu , auk þess er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, rúmgóð walk-in sturta, hiti í gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu með fallegri innréttingu, span helluborði, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp með frysti, bakarofni og parket á gólfi.
Stofa með parketi, útgengið út á sérlega skjólgóðar svalir til suð-vestur með útsýni til sjávar. Heimild er fyrir uppsetningu svalalokunar.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi og fataskápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Geymsla í sameign
Skjólgóður aflokaður garður með leiktækjum. Húsgjöld eignarinnar eru x kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, framkvæmdasjóður, húseigandatrygging, þrif sameignar, og þjónusta Eignarumsjónar. Engar fyrirhugaðar framkvæmdir.
Húsið er viðhaldslétt einangrað að utan, álklætt að hluta og gluggar ál-tré. Mikil byggð er nú í uppbyggingu við sjávarsíðuna yst á Kársnesi í Kópavogi. Nálægð við sjávarsíðu og smábátahöfn gerir byggðina að einni eftirsóknarverðustu staðsetningu Kópavogsbæjar.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Bjarnason löggiltur fasteignasali í síma 697 9215 / [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.