Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Nónsmári 11

201 Kópavogur

71.000.000 kr.

971.272 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2517225

Fasteignamat

64.300.000 kr.

Brunabótamat

47.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
73,1 m²
svg
2 herb.
svg
2 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 27. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Nónsmári 11, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 06. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Nónsmári 11, 201 Kópavogur. Glæsileg og rúmgóð 2ja herbergja 73 m2 íbúð á jarðhæð með 37,8 m2 verönd í nýlegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Smárahverfinu. Íbúðin getur verið laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. 

Skipulag:
Anddyri, baðherbergi/þvottahús, eldhús/stofa, svefnherbergi, verönd, geymsla. 

Nánar: 
Anddyri: Með parketi á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Stór "walk in" sturta með innbyggðum Grohe tækjum, glerskilrúmi og hurð. Baðherbergisinnrétting neðan handlaugar og stór spegill með lýsingu fyrir ofan. Upphengt salerni með innbyggðum kassa og handklæðaofn, útloftun. Inn af baðherberginu er Þvottarými með vinnuborði og skolvaski. 
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp á heilum vegg. 
Eldhús: Vönduð innrétting frá HTH, eyja með setsvæði og AEG tæki. Borðlýsing í efri skápum, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð, helluborð í borðplötu á eyju og eyjuháfur fyrir ofan. 
Stofa: Með parketi á gólfi og útgengi út á verönd á sérafnotasvæði íbúðarinnar. 
Geymsla: Staðsett í sameign hússins í kjallara, merkt 01-0027, 8,2 m2

Annað: Sameiginleg hjóla - og vagnageymsla, lyklalaust aðgengi að snyrtilegri sameign og myndavéladyrasími. Fjöldi bílastæða á lóð hússins og snjóbræðsla í stétt við húsið. Góð staðsetning í nágrenni við alla helstu þjónustu.  


Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða [email protected]
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Böðvar Sigurbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Böðvar Sigurbjörnsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. okt. 2023
48.850.000 kr.
64.900.000 kr.
73.1 m²
887.825 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Böðvar Sigurbjörnsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík