Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Flúðasel 61

109 Reykjavík

62.900.000 kr.

654.527 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2056598

Fasteignamat

58.050.000 kr.

Brunabótamat

46.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
96,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna til sölu þriggja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara við Flúðasel 61 í Rvk. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla. Sólpallur. Eignin er skráð 96,1 fm þar af er geymsla 4,5 fm.  

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: gengið er inn í sameign og niður tröppur að íbúðinni. Í forstofu er góður fataskápur og flísar á gólfi. Úr rúmgóðu holi er gengið í allar vistarverur íbúðar.
Stofa:  er opin við eldhús og hol. Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er á sérafnotareit úr stofu, þar er skjólgóð aflokuð verönd sem snýr í suður. 
Eldhús: opið við stofu og hol. Innrétting með góðu skápaplássi, eldavél, vifta, stæði fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi. Það er án glugga en fyrir liggur samþykki að koma fyrir glugga.
Svefnherbergi: bjart og rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi. 
Svefnherbergi II: samkvæmt teikningu er þetta rými sjónvarpsherbergi. Það er án glugga en fyrir liggur samþykki að koma fyrir glugga. Nýtt í dag sem svefnherbergi. Lofttúða er í herberginu.  
Baðherbergi: Snyrtileg skúffuinnrétting með handlaug ásamt skáp, baðkar m/sturtu, Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: í sameign er sérgeymsla íbúðar og snyrtilegt sameiginlegt þvottahús.
Sólpallur: útgengt er frá stofu á skjólgóðan aflokaða verönd sem snýr í suður. Framan við hann er garður og flott leiksvæði.

Viðhald og endurbætur:
2023 Skólplagnir myndaðar án athugasemda. Vatnsinntak er nýlegt í húsinu.
2024 Húsið allt tekið í gegn að utan, múrviðgerðir, málað, skipt um glugga þar sem það þurfti, þakrennur lagaðar. 

Frábær fyrsta eign á góðum stað í Seljahverfi þar sem stutt er í alla  þjónustu svo sem, skóla, leikskóla og verslun. Skemmtilegar gönguleiðir eru í hverfinu. 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind löggiltur fasteignasali [email protected] / 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. okt. 2019
31.300.000 kr.
33.000.000 kr.
96.1 m²
343.392 kr.
17. maí. 2018
28.050.000 kr.
29.800.000 kr.
96.1 m²
310.094 kr.
28. okt. 2014
17.200.000 kr.
23.500.000 kr.
96.1 m²
244.537 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík