Opið hús: Hverfisgata 39, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Sérstaklega björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í steyptu snyrtilegu fjölbýli við Hverfisgötu 39 til sölu. Íbúðin er á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. Sameiginlegar svalir eru út af hverri hæð hússins og einnig eru sameiginlegar þaksvalir, með virkilega fallegu útsýni út á sjóinn og yfir borgina.
Eignin er skráð skv. fasteignaskrá alls 96,5 fm. og þar af er geymsla 7,9 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur, parket á gólfi, fatahengi og rúmgóðir innbyggðir skápar.
Eldhús er með snyrtilegri hvítri innréttingu frá HTH, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn, innbyggður ísskápur, parket á gólfi. Glæsilegt útsýni til sjávar og yfir Esjuna frá norðurhlið (Veghúsastígsmegin). Hægt er að færa eldhús í stofu og bæta þannig við auka herbergi, búið er að leggja vatns og frárennslislagnir fyrir það.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Rennihurð er á milli stofu/borðstofu og herbergis.
sem er rúmgott og bjart með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. Fallegt útsýni er úr herberginu.
Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagðir veggir og upprunalegu terrazzo gólfi.
Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sína vél.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Stigahús er teppalagt, svalir á hverri hæð og á efstu hæð eru sameiginlegar stórar suðurþaksvalir.
Endurbætur:
Verið er að endurnýja neysluvatnslagnir.
Gluggar innan íbúðar málaðir 2025
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, verslun, veitingastaði og mannlíf. Göngufæri í leikskóla (Lindaborg).
Góð aðkoma er að húsinu. Inngangur er í húsið bæði frá Hverfisgötu og Veghúsastíg.
Allar nánari upplýsingar veitir Leifur Aðalsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 662-3999 eða á [email protected]
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður