Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
81,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Útsýni
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 29. apríl 2026
kl. 17:30
til 18:00
*** OPIÐ HÚS HAFNARBRAUT 12A, 200 KÓPAVOGUR. ÍBÚÐ 508. EIGNIN VERÐUR SÝND MIÐVIKUDAGINN 29. APRÍL KL 17:30-18:00. ***
Lýsing
Glæsileg 81,9 fm. 2-3ja herbergja enda íbúð á fimmtu og efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi við Hafnarbraut 12A á Kársnesi. Aukin lofthæð. Sérinngangur af svölum. Stórar og skjólgóðar svalir. Fallegt útsýni. Húsið var byggt 2020. Góð staðsetning á Kársnesinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Forstofa með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa er björt með mikilli lofthæð. Frábært útsýni. Parket á gólfi. Útgengi á mjög skjólgóðar og rúmgóðar suðvestur svalir.
Eldhús er í opnu rými við stofuna. Falleg hvít innrétting. Gott vinnu- og skápapláss. Tveir ofnar. Tæki öll frá AEG fylgja með þar með talin uppþvottavél með comfortlift.
Baðherbergi er rúmgott. Flísalagt í hólf og gólf. Góður speglaskápur. Innangeng sturta. Upphengt klósett. Opnanlegur gluggi. Tengi fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara en núverandi eigendur settu inn upphækkun fyrir þvottavél í stað þurrkara sem auðvelt er að fjarlægja.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart. Góðir skápar. Fallegt útsýni. Gluggar á 2 hliðum. Parket á gólfi.
Barnaherbergi er skráð sem geymsla en þar er hátt til lofts og hefur verið útbúið geymsluloft sem nýtist vel yfir herberginu. Góðir skápar, einn læsanlegur. Koja fylgir. Gluggi með opnanlegu fagi. Parket á gólfi.
Sérstæði í bílakjallara fylgir eigninni. Tilbúið fyrir rafhleðslustöð en núverandi eigendur hafa ekki sett upp.
Sameiginlegur garður með leiktækjum milli húsa.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í kjallara.
Snjallstýring
Öll lýsing nema á baðherbergi og undir skápum yfir vaski í eldhúsi er snjall stýrð með Philips Hue sem getur fylgt ef um það er samið.
Rúllugardínur í stofu og barnaherbergi eru snjall stýrðar og fylgja.
Sér nettafla er í íbúð. Nettengi eru inni í hjónaherbergi og á tveim stöðum í stofu.
Mikil uppbygging er í þessu rólega og rótgróna hverfi á Kársnesi. Í næstu götu er veitingastaður, bakarí og stutt er í Sky Lagoon. Strætó stoppar stutt frá og Borgarlínan mun gera það einnig þegar þegar Fossvogsbrú verður komin í gagnið. Það verður mikil búbót fyrir hjólandi, gangandi og þá sem ferðast með almenningssamgöngum og veitir góða tengingu við Háskólana og miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected].

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. mar. 2021
49.000.000 kr.
52.400.000 kr.
81.9 m²
639.805 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026