Opið hús: Álalind 3, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 06. Eignin verður sýnd laugardaginn 25. apríl 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Lýsing
Nánar lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu. Góð heimilistæki.
Sér þvottahús er í íbúðinni. .
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og rúmgóð sturta..
Tvö rúmgóð svefnherbergi og úr öðru þeirra er útgengt á svalir.
Stofan er rúmgóð og björt, útgengt á skjólgóðar svalir með fallegu útsýni og svalalokun.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir með íbúðinni ásamt sér geymslu í sameign.
Falleg eign á góðum stað í Kópavogi þar sem stutt er í þjónustu svo sem, skóla, leikskóla, veitingastaði og verslanir.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.