Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

233

svg

194  Skoðendur

svg

Skráð  24. apr. 2026

fjölbýlishús

Suðurgata 75

220 Hafnarfjörður

59.900.000 kr.

747.815 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2079800

Fasteignamat

60.400.000 kr.

Brunabótamat

44.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
80,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 28. apríl 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Suðurgata 75, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. apríl 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu hæð) ásamt íbúðarherbergi í kjallara í fjórbýlishúsi við Suðurgötu 75í Hafnarfirði. Nýtt parket er á íbúðinni og herbergi í kjallara. Verið er að útbúa sameiginleg salernis- og sturtu aðstöðu í kjallara á kostnað seljanda og er því herbergið í kjallara tilvalið til útleigu. Þvottahúsaðstaða er í kjallara þar sem hver íbúð er með sitt tengi. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 80,1 fm. og þar af er herbergi í kjallara 16,1 fm. og geymsla 3,3 fm. 


Nánari lýsing:
Inngangur sameiginlegur með íbúðinni á 1. hæð. Aðeins tvær íbúðir eru í þessu stigahúsi.
Hol með opnu innbyggðu fatahengi og parket á gólfi. Fyrir ofan holið er geymsluloft með stiga. 
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, uppþvottavél, ofn, helluborð, gufugleypir, ísskápur getur fylgt og parket á gólfi.   
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Hægt er að opna vegg á milli stofu og herbergis, parket er lagt undir opið.
Hjónaherbergi rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi við stofu rúmgott með parketi á gólfi.  
Baðherbergi með sturtu, snyrtileg innrétting, gluggi, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf. 

Á jarðhæð er sameiginlegur inngangur frá jarðhæðinni og frá aðal-inngangi.
Herbergi í kjallara er með parketi á gólfi. 
Geymsla íbúðar í kjallara er með glugga og skráð 3,3 fm. 
Þvottahús sameiginlegt þar sem hver íbúð er með sitt tengi. Verið er að setja upp sturtu og salernisaðstöðu í þvottahúsinu á kostnað seljanda. 

Aðkoma að húsinu er snyrtileg, nýleg hellulögn með hitalögn og snyrtilegur garður.
Endurnýjun á húsi: Skólplagnir og dren var endurnýjað ca. árið 2011 að sögn fyrrum eigenda hússins.
Sumarið 2026 á að endurnýja þakrennur og mun seljandi greiða fyrir þær framkvæmdir. 

Um er að ræða vel staðsetta íbúð í rótgrónu hverfi á eftirsóttum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu [email protected]


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. feb. 2024
55.300.000 kr.
45.500.000 kr.
80.1 m²
568.040 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík