Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða 121,1 fm 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli með lyftu. Bílskúr tilheyrir íbúðinni og svalalokun á svölum. Búið er að skipta um alla ofna í íbúð fyrir nokkrum árum, tafla fyrir eldhús endurnýjuð, gluggar hafa verið endurnýjaðir fyrir ekki svo löngu ásamt því að húsið hefur almennt fengið gott viðhald á undanförnum árum.
Stutt er í leik- og grunnskóla, verslunarkjarninn Hólagarður er rétt hjá þar eru m.a. Bónus, Domino´s og fleiri góðar verslanir. Stutt er í aðra almenna þjónustu.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]
Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á lokaðar suðursvalir, steinn á gólfi á svölum og ofn.
Eldhús er með flísum á gólfi, hvít innrétting ásamt svartri borðplötu og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum og skápar í tveimur herbergjum.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar með sturtu, wc, skápar undir vask og ofn.
Þvottahús tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Bílskúr er með stein á gólfi, rafmagn ásamt heitu og köldu vatni.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.