Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Brekkugata 1

210 Garðabær

93.900.000 kr.

836.153 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2364230

Fasteignamat

93.100.000 kr.

Brunabótamat

70.060.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
112,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna: Glæsilega, bjarta og mjög vel skipulagða 3-4 herbergja íbúð á 3. hæð með æðislegu útsýni ásamt stæði í bílakjallara á mjög góðum stað í Urriðaholti í Garðabæ. Birt stærð samkvæmt HMS er 112,3 fm og þar af er geymslan skráð 7,7 fm. Íbúðin er skráð 4 herbergja með þremur svefnherbergjum en er í dag með tveimur svefnherbergjum. Auðvelt væri að bæta því þriðja við ef svo bæri við.

Nánari upplýsingar:

Böddi Lgf. S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Anddyri/hol með þreföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Alrými/stofa: Stórt og opið stofurými með stórum útsýnisgluggum og útgengi út á góðar svalir sem snúa í suður og vestur.
Eldhús: Inn af stofu er eldhús með fallegri innréttingu með miklu skápaplássi, eyju og góðum tækjum.
Við hlið eldhússins er gert ráð fyrir sjónvarpsholi á teikningu.
Baðherbergi: er rúmgott með upphengdu salerni, vaski í innréttingu og góðri „walk in“ sturtu.
Þvottahús: Inn af baðherberginu er þvottahús með góðri innréttingu.

Hjónaherbergi: er með góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Barnaherbergi: er með fataskáp.
Fallegt parket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem eru stórar ljósar flísar.
Stórglæsilegt útsýni er frá öllum gluggum og svölum íbúðarinnar, þar sem m.a. sólarlagið og norðurljós og gosið við Fagradalsfjall skapa stórkostlegt sjónarspil þegar svo ber við. Einnig blasir Snæfellsjökull við sjóndeildarhringinn í góðu skyggni.

Á sameignargangi er hjólageymsla og góð sérgeymsla.
Merkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Húsið er vel staðsett í Urriðaholti, þar sem stutt er í ýmsa þjónustu og verslanir í þjónustukjarnanum við Kauptún og göngufæri er í fallega náttúru og gönguleiðir í Heiðmörk og víðar. Einnig eru tveir golfvellir í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar: Böddi Lgf. S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. mar. 2025
88.600.000 kr.
88.500.000 kr.
10303 m²
8.590 kr.
22. mar. 2022
59.400.000 kr.
73.000.000 kr.
112.3 m²
650.045 kr.
15. jan. 2021
59.400.000 kr.
57.500.000 kr.
112.3 m²
512.021 kr.
6. mar. 2020
23.550.000 kr.
317.200.000 kr.
617.9 m²
513.352 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík