Lýsing
Miklaborg kynnir: 3-4 herbergja talsvert uppgerða hæð og ris að Hellisgötu 18 í Hafnarfirði. Endurnýjað eldhús og baðherbergi. Hjónaherbergi hefur verið stúkað af á hæðinni og 2 svefnherbergi undir súð í risi. Um 60 m2 afgirtur sólpallur við húsið er í sameign.
Leitið upplýsinga hjá Friðrik i s. 6161313
NÁNARI LÝSING: Gengið er upp tröppur á hæð og komið inn í litla forstofu. Gengið áfram inn í opið endurnýjað eldhús með afar vönduðum tækjum. Hæðin hefur verið opnuð og er gengið áfram inn í samliggjandi stofu. Hjónaherbergi er á hæðinni með góðum skápum. Það er stúkað af úr alrými. Endurnýjað baðherbergi er með baðkari, sturtu, upphengdu salerni og góðum innréttingum. Innangengt af hæðinni í sameign í kjallara þar sem eru sameiginlegt þvottahús og geymsla íbúðar. Úr stofu er gengið upp í ris um tréstiga. Á stigapalli er gluggalaust herbergi / rými sem nýtist vel sem leikherbergi barna eða tómstundaherbergi. Í risi eru 2 góð svefnherbergi undir súð. Annað með þakglugga og hitt með kvisti.
Gólfefni íbúðar: Olíuborið parket og flísar
Innra skipulagi íbúðar hefur verið breytt og er því ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Í deiliskipulagi er heimild til að lyfta þaki og þakkvistum.
Norðan við húsið er ca.60 m2 afgirtur skjólsæll sólpallur sem er í sameign íbúa hússins og er frábært útiverusvæði.
Áhugaverð eign í gamla hluta Hafnarfjarðar í nálægð við miðbæjarkjarnann og rétt við Hellisgerði.
Nánari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg. fasteignassali í s. 616 1313 og [email protected]