Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 163,2 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Vogatungu 90 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús,salerni, geymslu, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu.
Gott geymsluloft sem er ekki í fermetratölu eignarinnar (ca. 15 m2). Gott skipulag og fallegar innréttingar frá HTH. parket og innihurðir frá Birgisson. Mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Timburverönd og þökulagður bakgarður í suðurátt. Möl er í bílaplani.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 (Hjónaherbergi) er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og baðkari, innaf baðherbergi er þvottahús.
Þvottahús er með innréttingu og opnarlegum glugga. Flísar á gólfi.
Geymslan er stærri en á teikningu með parketi á gólfi. Úr geymslu er aðgengi upp á rúmgott geymsluloft.
Salerni er inn af geymslu með parketi á gólfi, vegghengdu salerni og lítilli innréttingu.
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr stofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í suðurátt.
Bílskúr er skráður 23,0 m2 en er minni en það í dag þar sem það er búið að stækka geymslu og gera salerni. Bílskúrinn er með góðri innkeyrsludyr.
Verð kr. 127.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.