Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
einbýlishús

Hellisgata 24

220 Hafnarfjörður

149.900.000 kr.

667.409 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075326

Fasteignamat

128.050.000 kr.

Brunabótamat

94.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1920
svg
224,6 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 3. maí 2026 kl. 13:30 til 14:00

Opið hús: Hellisgata 24, 220 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd sunnudaginn 3. maí 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir glæsilegt einbýli að Hellisgötu 24 í 220 Hafnarfirði með stórum sérstæðum bílskúr og möguleika á allt að sjö svefnherbergjum. Eignin er timburhús á steyptum grunni, skráð 224,6 m2 að stærð, þar af 182,6 m2 íbúðarrými og bílskúr 42 m2, og er á þremur hæðum þar sem á fyrstu hæð er anddyri, herbergi, snyrting, eldhús, borð- og setustofa, á annari hæð eru tvö svefnherbergi og sjónvarpssstofa (mögulegt breyta í tvö svefnherbergi) og í kjallara eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Frá þvottahúsi er útgengi í gróinn garð eignar þar sem er heitur pottur. 
Falleg eign í grónu hverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er leik- og grunnskóla, Hellisgerði, Víðistaðartún, miðbæ Hafnarfjarðar sem og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni. 


Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected] 

Nánari lýsing. 
Fyrsta hæð. Komið inn í rúmgott og bjart anddyri þar sem er fatahengi, gluggi með opnanlegu fagi og flísar á gólfi. Frá anddyri er gengið inn í hol/skála eignar sem tengir saman vistarverur fyrstu hæðar. Til vinstri frá holi er eldhús þar sem er falleg hvít innrétting með miklu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu og ofn í vinnuhæð. Í eldhúsi eru jafnframt gluggar á tvo vegu og á gólfi er afar fallegar upprunalegar viðarfjalir. Opið er frá eldhúsi og inn í borð- og setustofu sem eru rúmgóðar og bjartar, með fallegum gluggum til suðurs, panil í lofti og viðarfjölum á gólfi. Á fyrstu hæð er eitt herbergi þar sem eru nýlegir hvítir fataskápar og parket á gólf. Inn af herbergi er snyrting þar sem er hvít innrétting með skápum undir handlaug sem og yfir, vegghengt WC og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket.
Önnur hæð. Gengið upp um fallegan sérsmíðaðan timburstiga og komið upp í sjónvarpshol/stofu þar sem eru gluggar á tvo vegu, aukin lofhæð, panill í lofti og parketi á gólfi. Svefnherbergi á 2. hæðinni eru í dag tvö og eru bæði rúmgóð og björt, með parketi á gólfi og aukinni lofthæð. Í öðru svefnherberginu eru jafnframt gluggar á tvo vegu og fataskápar innan herbergis. Fyrir áhugasama er möguleiki á að útbúa tvö svefnherbergi til viðbótar á hæðinni úr sjónvarpsstofu.  
Kjallari. Komið niður í parketlagðan gang sem tengir saman rými hæðar þar sem eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Svefnherbergi eru bæði með parketi á gólfi og í stærra svefnherberginu eru jafnframt lausir fataskápar. 
Á baðherbergi er stór hvít innrétting með ágætis skápaplássi, flísalagður sturtuklefi, baðkar, vegghengt WC og handklæðaofn. Á gólfi og á veggjum eru flísar og á baðherbergi er gluggi með opnanlegu fagi. Í þvottahúsi er steypt gólf, góð vinnuaðstaða, gluggar með opnanlegu fagi og útgengi í garð eignar þar sem er heitur pottur.

Eign tilheyrir stór bílskúr þar sem er rafmagn, heitt- og kalt vatn, rafdrifin bílskúrshurð, sér inngönguhurð og þrennir gluggar á norðurhlið. Við hlið bílskúrs er skjólgóð timburverönd og fyrir framan hann er hellulagt bílaplan. Loks umlykur eignina fallegur garður í góðri rækt. 

Falleg fjölskyldueign með mikla nýtingarmöguleika í grónu hverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla þjónustu, fallega náttúru í Hellisgerði, Víðistaðatúni og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs. [email protected].


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík