Opið hús 3. maí kl. 12:30 - 13:00
Lýsing
Björt og vel skipulögð fimm svefnherbergja íbúð á fyrstu hæð í þríbýlishúsi á eftirsóttum stað í hlíðunum. Sér inngangur. Eignin er alls 194,6 fm, þar af 35,6
fm bílskúr.
Nánari lýsing
Forstofa: Forstofan er flísalögð. Þar er gestasalerni og eitt svefnherbergi.
Alrými: Stofa/Borðstofa/Sjónvarpshol: Parket og stórir gluggar sem snúa í suður.
Gler nýlega endunýjað með sólvarnargleri (2026), gluggar lagfærðir.
Eldhús/Þvottahús: Nýtt eldhús frá HTH, steinn frá Granítsmiðjunni, Bora spanhelluborð með innbyggðri viftu. Tveir AEG ofnar. Gengið er inn í þvottahús inn af eldhúsi. Þar inn af er búr, sem getur nýst sem hálfköld geymsla.
Svefnálma: Fjögur svefnherbergi. Hjónaherbegi er með rúmgóðum skápum. Stórt herbergi með skápum, má breyta auðveldlega í tvö herbergi.
Gengið er á rúmgóðar suðursvalir frá svefnálmu. Baðherbergi er flísalagt með baðkari m/sturtu.
Geymsla: Um 5 fm geymsla í kjallara.
Bílskúr: Bílskúr er 35,6 fm með heitu og köldu vatni. Einnig er hleðslustöð fyrir bíl.
Einkastæði fyrir 2 bíla fyrir framan bílskúr.
Framkvæmdir undanfarin ár:
2016: Drenað og nýjar vatnslagnir frá götu
2021/22: Ný svalahurð, nýir gluggar í baðherbergi og tveimur svefnherbergjum
2023: Nýtt þak
2025: Skipt um vatnspípur í bílskúr
2025: Gert við múrverk og húsið málað
2025: Nýtt eldhús frá HTH ásamt granít-borðplötu og tækjum frá AEG
2026: Nýtt sólvarnargler í stofu og gluggar lagaðir
Frábær staðsetning. Barnaskóli, leikskóli, framhaldskóli og verslun í fárra mínúta göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.