Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1930
svg
201,3 m²
svg
8 herb.
svg
4 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Einstaklega sjarmerandi og vel skipulagt 3.hæða einbýlishús ásamt bílskúr, sem hefur verið breytt í stúdíoíbúð, að Suðurgötu 100. 102 Reykjavík.
Heildareignin er skráð samkvæmt þjóðskrá Íslands, einbýlishús skráð 177.1 fm og bílskúr skráður 24.2.
Birt heildarstærð eignar er 201.3 fm.

Eignin var áður skráð í póstnr. 107 en var breytt í póstnr. 102 árið 2021 vegna þess hvernig eignin snýr að Suðurgötu, þó svo að nærliggjandi lóðir séu allar skilgreindar sem 107.

Um er að ræða fallegt hús með mikinn karakter á þessum frábæra og eftirsótta stað í vesturbæ Reykjavíkur, í göngufjarlægð við Ægissíðuna, miðbæinn, Háskóla Íslands og alla helstu þjónustu.


Nánari lýsing eignar:

Miðhæð:

Gólfefni: Gegnheilt eikarparket er á öllu alrými og herbergjum, flísar í kjallara og baðherbergjum.
Forstofan komið er inn í forstofu með góðum fataskáp með rennihurðum á hægri hönd. Parket á gólfi.
Gestasnyrting: innaf forstofu, flísar á gólfi, vegghengt klósett, góð innrétting, hillur og stór spegill.
Eldhúsið er rúmgott með góðu vinnuplássi og bogadreginni eldhúseyju með helluborði og háf, borðplata á eldhúseyju úr granít stein. Efri og neðri skápar í eldhúsi, bökunarofn í vinnuhæð, góður búrskápur, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa búið er að breyta skipulagi hæðarinnar þannig að nú er herbergi þar sem áður var borðstofa. (auðvelt að breyta til baka)
Bjart og fallegt rými þar sem hægt er að ganga út á viðarverönd um tvöfalda franska svalahurð. 
Herbergi 1: Áður borðstofa, (auðvelt að breyta tilbaka), í dag notað sem rúmgott herbergi. Laus fataskápur úr ikea. Parket á gólfi.

Efri hæð:
Hjónasvíta: stór og góð hjónasvíta á vinstri hönd þegar komið er upp stiga. Innaf hjónaherbergi er "walk in" fataskápur og baðherbergi með bæði sturtu og baðkari. Góð innrétting og spegill ásamt handklæðaofni. Upphengt salerrni. Opnanlegir gluggar eru inni á baði. Parket er á gólfum í hjónasvítu. Flísað í hólf og gólf inni á baði. Stór opnanlegur Velux gluggi með loftunarstillingum. Úr hjónasvítu er útgengt um svalahurð á bílskúrsþak. Mögulega væri hægt að fá leyfi til þess að koma þar fyrir þaksvölum.
Herbergi 2: er með parketi á gólfi og tveimur lausum fataskápum. Mjög rúmgott barnaherbergi eða skrifstofa. Stórir opnanlegir Velux gluggar með loftunarstillingum.

Kjallari:
Geymsla: er undir stiga á hægri hönd þegar komið er niður.
Herbergi 3: rúmgott herbergi á hægri hönd. Eldra eikarparket á gólfi sem farið er að sjá á. Innbyggður stór fataskápur.
Herbergi 4: á hægri hönd þegar komið er niður stiga. Eldra eikarparket á gólfi sem farið er að sjá á. 
Herbergi 5: þegar labbað er inn flísalagðan herbergjagang er lítið barnaherbergi á vinstri hönd. Eldra eikarparket á gólfi.
Herbergi 6: á vinstri hönd á herbergjagangi, er lítið barnaherbergi. Góður innbyggður fataskápur. Eldra eikarparket á gólfi. 
Baðherbergi/þvottahús: Flísalagt í hólf og gólf. Gott skápapláss / lagnagrind er að hluta til inni í innréttingu. Þvottavél og þurrkari inni í innréttingu og hægt að loka af með spegla rennihurð. Flísalögð sturta. Opnanlegur gluggi er í rýminu en einnig lofttúða.
Á herbergja gangi í kjallara er annar inngangur inn í húsið svo hægt væri að útbúa aðra auka íbúð í kjallaranum með sérinngangi.

Bílskúr:
Bílskúr var breytt í fullbúna studió íbúð árið 2021. Gólf var þá flotað, parket sett á alrými/eldhús, Baðherbergið flísað á gólfi og í sturtu. Walk in sturta, upphengt klósett, innrétting úr Ikea, ásamt plássi fyrir þvottavél. Vélræn lofttúða er inni á baði. Eldhúsinnrétting úr Ikea. Góð lofthæð og geymslurými að hluta. Sérinngangur er inn í bílskúrinn og einnig stór opnanlegur gluggi.

Viðhald sl. ár:
2011 Rishæð smíðuð ofan á húsið þ.a.l. þak og gluggar á efstu hæð frá 2011
2019 Skipt um ofnalagnir í kjallara
2020 Klæðning og gluggar málaðir
2021 Skipt var um þrýsijafnara og öyggisventil í lagnagrind
2022 Bílskúrsþak málað
2022 Skipt um blöndunartæki í báðum sturtum 
2022 Skipt um blöndunartæki á gestasalerni, baðherbergi í kjallara og eldhúsi
2021 Bílskúr breytt í fullbúna stúdíóíbúð 
2024 Kjallari sprunguviðgerður, múraður og filteraður
2025 Skipt var um annan glugga í kvisti að framan

Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali [email protected] sími 859-5559.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

img
Sveinn Gíslason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
RE/MAX
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
img

Sveinn Gíslason

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. mar. 2019
89.700.000 kr.
93.000.000 kr.
201.3 m²
461.997 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone

Sveinn Gíslason

Skeifunni 17, 108 Reykjavík