Upplýsingar
Byggt 1997
184,9 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vandað og vel skipulagt parhús á frábærum stað innst í botnlangagötu við Viðarás 29A í þessu vinsæla hverfi í Árbænum/Selásnum. Óheft útsýni er yfir Rauðavatn og fjallasýn allt frá Esjunni og yfir í Bláfjöll. Húsið stendur á gróinni hornlóð með góðri verönd til vesturs og góðum suðurgarði. Stutt er í leikskóla, skóla, útivistarsvæði og stofnbrautir.Eignin er skráð 184,9 fm og er á tveimur hæðum, komið er inn á efri hæð sem er 64,4 fm og bílskúr 25,7 fm. Neðri hæð er 94,8 fm. Efri hæð skiptist í forstofu, snyrtingu, eldhús, eldhúskrók, borðstofu, stofu og innbyggðan bílskúr. Á neðri hæð eru fjögur herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í flísalagða forstofu með hita í gólfi og fataskápum. Gestasnyrting er á hæðinni með flísum á gólfi og innréttingu með vaski. Eldhúsið er bjart með innréttingu og flísum á gólfi. Inn af eldhúsi er góður borðkrókur með hita í gólfi, djúpri gluggakistu og stórum gluggum. Gengið er út frá því rými út á verönd með skjólvegg og góðri aðstöðu til að grilla. Á hæðinni er góð stofa og borðstofa með flísum á gólfi. Óheft útsýni er úr stofunni yfir Rauðavatn og fjallasýn frá Esjunni og yfir í Bláfjöll. Útgengt er á suðursvalir frá stofu. Gengið er frá stofu og niður á neðri hæð. Þar eru fjögur parketlögð herbergi, þrjú af þeim eru með fataskápum. Gangar eru flísalagðir. Útgengt er af herbergjagangi út í suðurgarð. Baðherbergið er með hita í gólfi, mjög rúmgott með innréttingu, sturtu og hornbaðkari. Rúmgott þvottahús er á neðri hæð með góðum geymsluskápum, innréttingu og vaski.
Bílskúr er rúmgóður með góðri lofthæð og flísum á gólfi. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs. Gengið er inn í bílskúr úr forstofu á efri hæð.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook