Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1964
193 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Óðinsgata 7, 193.0 fm 5 herbergja íbúð á efstu hæð. Um er að ræða stórglæsilega nýendurgerða íbúð með stórum svölum til vesturs og glæsilegu útsýni.Húsið er steinsteypt og byggt árið 1964. Íbúðin hefur verið endurnýjuð frá grunni, skipt hefur verið um öll gólfefni, innréttingar, baðherbergi, eldhúsinnréttingu auk þess sem lagnir og rafmagnslagir hafa verið endurnýjaðar og farið yfir alla ofna. Gólfefni í alrými er gegnheilt eikar parket lagt í fiskibeinamunstur, flísar á baðherbergjum og teppi á tveimur af þremur herbergjum.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Íbúðin skiptist þannig : Anddyri, stór stofa og borðstofa ásamt opnu eldhúsi með Bulthaup eldhúsinnréttingu (antík skúffur í eldhúsi fylgja ekki með), tvö baðherbergi með vönduðum tækjum, þrjú svefnherbergi / vinnuherbergi og stórar svalir. Nánari lýsing: Gengið er upp stigahús frá Óðinsgötu. Í norðurhluta húsnæðisins er komið inn í stóra og bjarta stofu, borðstofan er með miklum gluggum, útsýni er yfir borgina, á Keili, Snæfellsjökul og Esjuna. Kvöldsólin flæðir inn í íbúðina. Í hluta þess rýmis er opið eldhús og við hlið þess er flísalagt baðherbergi með baðkari. Arin er í stofu. Innaf þessu rými eru tvö rúmgóð herbergi. Úr stofu er gengið út á stórar vestur svalir. Milli stofu og hjónaherbergis er breiður gangur sem nýtist vel sem vinnuaðstaða. Hjónaherbergið er rúmgott með sér baðherbergi með baðkari og sturtu og fataherbergi innaf. Í framhaldi af fataherbergi er þvottahús og annar útgangur í stigahús.
Komið er að viðhaldi á húsinu að utan og gerð hefur verið nákvæm ástandsskýrsla. Kostnaðaráætlunin hljóðar upp á 160.000 kr. á fm..
Nýlega hefur Óðinstorgið sem stendur fyrir framan húsið verið endurnýjað á mjög fallegan og vandaðan hátt.
.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. sep. 2023
108.050.000 kr.
150.000.000 kr.
193 m²
777.202 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026