Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Upplýsingar
Byggt 1976
304 m²
6 herb.
Lýsing
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir alla húseignina að Mýrum 4, Patreksfirði, nánar tiltekið eign með fastanúmer F2123930, ásamt öllu því sem eigninni fylgir. Einstaklega reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin stendur á 700 fm. gróinni lóð með miklu útsýni til sjávar. Húsið hefur fengið ágætis viðhald verið endurnýjað að hluta, þar á meðal neysluvatnslagnir og baðherbergi.
Rúmgott einbýlishús með sjávarsýn
Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.
Rúmgott einbýlishús með sjávarsýn
- Heildarstærð: 304 fm
- Bílskúr: 34,4 fm
- Byggingarár: 1976
- Herbergi: 5 svefnherbergi + sjónvarpshol + húsbóndaherbergi
- Staðsetning: Einstaklega falleg staðsetning með útsýni yfir bryggju og fjörðinn
- Flísalögð forstofa með gestasalerni
- Björt og rúmgóð stofa með útgengi á stórar svalir og steinlagðar gluggakistur
- Eldhús einnig með útgengi á svalir, með eikarinnréttingu í U-lagi, borðkrók, helluborði, viftu og aðstöðu fyrir uppþvottavél.
- Parket á holi, stofu og eldhúsi
- Herbergi við inngang sem áður var hluti af stofu – auðvelt að fjarlægja vegg
- Aukainngangur og forstofu-/húsbóndaherbergi inn af eldhúsi
- Gengið niður fallegan timburstiga á neðri hæð
- Glæsilegt sjónvarpshol með arni
- Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum
- Þrjú barnaherbergi (án skápa)
- Þvottahús með útgengi í garð og verönd
- Geymsla/hitakompa með hitatúbu og lagnagrind hússins
- Nýlegt baðherbergi með gólfhita, baðkari og sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni
- 34,4 fm bjartur bílskúr með gluggum, hurðaopnara og gönguhurð
- Vaskur og tveir kranar
- Máluð gólf
- Steypt bílaplan og stétt að inngangi
- Köld geymsla við hlið bílskúrs (upphaflega hönnuð sem ruslatunnuskýli)
- Húsið nýmálað að utan og múrviðgert
- Upprunalegir gluggar í góðu ásigkomulagi
- Neysluvatnslagnir og kerfi endurnýjað ásamt baðherbergi á neðri hæð
- Leigjandi hefur greint frá leka í svalahurð í mjög slæmu veðri
Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.