Lýsing
Sumarhúsið er 170,9 fm timburhús klætt með báruáli og bandsagaðri furu, það er á steyptum sökkli og með steypta botnplötu, einangrun er steinull. Þakið er hefðbundið timburþak klætt með báruáli.. Upphaflega húsið var bygggt árið 2007 en gestahúsið/ bílskúr var byggt 2020. Hitaveita er í húsinu og gólfhiti í flestum rýmum, greitt er fast gjald kr. 21.000 á mánuði fyrir heita vatnið óháð notkun en nú stendur til að setja upp mæla og greiða eftir notkun. 5g net er á svæðinu og þriggja fasa rafmagn og hægt er að taka inn ljósleiðara. Eigin vatnsveita er á svæðinu með geislunarbúnaði sem tryggir hámarksgæði vatnsins. Góð aðkoma er að húsinu, næg bílastæði og lóðin einstaklega falleg og vel skipulögð. Við húsið eru tvær rotþrær sem Kjósarhreppur sér um að hreinsa reglulega. Lóðin er leigulóð skráð 5.451 fm, með sérlega fallegum gróðri, rúmgóðum palli, gróðurhúsi og heitum potti. Lítill lækur með tjörn rennur í gegnum lóðina og þaðan er stórkostlegt útsýni yfir svæðið. Gestahúsið/ bílskúr er 105 fm og er staðsett fyrir neðan sumarhúsið og er í dag nýtt sem lítil íbúð og verkstæði. Á lóðinni er einnig stór óskráð útigeymsla.
Nánari lýsing sumarhús:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með veglegum fataskápum og flísalögðu gólfi. Inn af forstofu er lítil gestasnyrting og rúmgott þvottahús með útgengi. Úr forstofu er gengið inn í bjart og rúmgott hol þaðan sem útgengt er út á rúmgóðan pall með skemmtilegri grillaðstöðu og góðum gróðurskála. Heitur pottur er við húsið sem nýtir affall hússins. Stofa og eldhús eru í björtu alrými með stórum gluggum sem veita fallegri birtu inn í rýmið. Glæsileg eldhúsinnrétting og tæki síðan 2022 með fallegri lýsingu, niðurfelldum vaski og helluborði með innbyggðri viftu. Tveir innbyggðir ísskápar og barskápur og stór eyja með skúffum. Baðherbergið var allt gert upp 2023 og er afar glæsilegt, rúmgott og bjart, tveir vaskar i innréttingu, vegghengt wc, baðkar og walk inn sturta. Eitt rúmgott svefnherbergi er á neðri hæðinni með góðum skápum. Inn af holi er einnig sérlega rúmgott sjónvarpsherbergi með fallegu útsýni að Valshamrinum sem sumarhúsafélagið á svæðinu dregur nafn sitt af. Á efri hæðinni þar sem á teikningu er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum er nú skemmtileg hjónasvíta með rúmgóðu fataherbergi. Vínilparket er á efri hæðinni en harðparket og flísar á neðri hæðinni.
Nánari lýsing gestahús/bílskúr:
Skemmtilega innréttuð lítil íbúð sem auðveldlega mætti leigja út, forstofa, stofa og eldhús í opnu rými, lítið svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Bílskúrinn sem er bæði með inngönguhurð og stórri bílskúrshurð er í dag innréttaður sem verkstæði.
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, sími 898-2017 ** Bókið einkaskoðun hjá [email protected] **
Hér er um að ræða yndislegan sælureit á fallegum og gróðursælum stað sem hægt er að njóta allt árið um kring í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ. Skemmtilegt leiksvæði er innan svæðisins og fjölbreytt aðstaða til útivistar og örstutt í sjóböðin í Hvammsvík.
Hvet áhugasama til að skoða instagram síðu seljanda en þar má finna skemmtilegar myndir af eigninni: " esterheimaikjos"
Gjöld:
Fasteignagjöld 2026 eru 377.600
Brunatrygging 2026 er 167.624
Lóðarleiga á ári 170.000
Árgjald í Sumarhúsafélagið Valshamar er 2 x 25.000 á ári
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.