Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
einbýlishús

Kambahraun 8

810 Hveragerði

76.000.000 kr.

409.924 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2210563

Fasteignamat

80.400.000 kr.

Brunabótamat

87.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1969
svg
185,4 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Kambahraun 8, 810 Hveragerði.
Einbýlishús í grónu hverfi, stutt við Hamarinn og útivistarsvæði.
Eignin er samtals 185,4 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands; þar af er bílskúrinn 49,0 m².
Eignin telur forstofu, stofu, eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Bílskúr er ekki í nothæfu ástandi í dag og þarfnast viðhalds.
Fasteignamat eignarinnar er 89.350.000kr.


Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]


Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð. Geymsla er innan forstofu.
Eldhús er á hægri hönd þegar gengið er inn frá forstofu. Þar er eldri innrétting og komið að viðhaldi á innréttingu og tækjum.
Sofan er björt með aðgengi út á baklóð sem er gróin og skjólgóð. 
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi með stórum, innbyggðum fataskáp, dúkur á gólfi.
Barnaherbergi I, dúkur á gólfi, án fataskáps.
Barnaherbergi II, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi með eldri innréttingu, salerni og baðkari. Dúkur á gólfi.
Gestasnyrting er í þvottahúsi. Þar er handlaug og salerni.
Þvottahús án innréttinga en þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara. 

Nýlegir gluggar og gler er í íbúðinni en komið er að viðhaldi á eigninni.
Húsið var klætt með Steni-klæðningu árið 2008.
Bílskúrinn hefur ekki fengið neitt viðhald og þarfnast töluverðra endurbóta.
Mælt er með að kaupandi kynni sér vel ástand eignarinnar en eignin selst í því ástandi sem hún er í.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone