Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
fjölbýlishús

Þorrasalir 11

201 Kópavogur

89.900.000 kr.

802.679 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2326175

Fasteignamat

88.400.000 kr.

Brunabótamat

65.390.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2013
svg
112 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 12. maí 2026 kl. 16:30 til 17:30

Opið hús: Þorrasalir 11, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 05 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 11. maí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:30.

Lýsing

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herbergja íbúð á efstu hæð að Þorrasölum 11 í Kópavogi. Lyftuhús og stæði í bílageymslu fylgir. Íbúðin er rúmgóð með stórum skjólgóðum svölum (20,8 m2) sem möguleiki er að setja svalalokun á. Inngangur inn í íbúð er við lyftuhús. Stutt er út í náttúruna/golfvöll. Einnig er göngufæri í leikskóla, grunnskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og verslun.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 112 m2.Stæði í bílageymslu er utan fermetrafjölda.

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af sameiginlegum utanáliggjandi stigagangi með glerhandriðum. Innan íbúðar er viðarfataskápur með áföstum bekk. Ljósdrapplitaðar gólfflísar.
Hol er parketlagt og flæðir án þröskulda inn í öll rými nema forstofu, baðherbergi og þvottahús.
Eldhús er í opnu rými með stofu. Opið inn frá gangi og stofu. Viðarinnrétting á þremur veggjum. Á tveimur veggjum ná efri skápar upp í loft. Háfur yfir helluborði, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél, svört borðplata og svartir sökklar. 
Stofa er rúmgóð og útgengi út á stórar svalir sem er góð viðbót við stofuna.
Svalir eru 20,8 m2 og með útsýni til vesturs í átt að golfvellinum. Möguleiki er að setja svalarlokun. Viðarplattar á svalargólfi gera svalirnar hlýlegri og að meiri vistarveru. Rafmagnshitari á vegg fylgir einnig. Glerhandrið er matt.
Herbergi I er við stofu og snýr gluggi út á svalir. Einfaldur viðarfataskápur. Veggur yfir í stofu er léttur og því hægt að stækka stofuna enn frekar á kostnað þessa herbergis.
Herbergi II (hjónaherbergi) er rúmgott með stórum viðarfataskápum sem fylla einn vegg. Gluggar snúa til suðausturs.
Herbergi III er einnig í SA hluta íbúðarinnar. Einfaldur viðarfataskápur. Rúmgott herbergi, eins og hitt barnaherbergið.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, ljós drapplitaðar á gólfi og hvítar upp veggi. Viðarinnrétting í stíl við aðrar innréttingar í íbúðinni. Veggfestur spegill og innfelld ljós undir kappa. Sturta með gleri, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er milli baðherbergis og Herbergi I. Ljósdrapplitaðar gólfflísar, vaskur og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Rafmagnstafla er staðsett í þvottahúsi.
Bílageymsla er á 1. hæð og er að hluta til opin. Sérmerkt bílastæði þessara íbúðar er B9. Rafmagn í bílageymslu er yfirfarið svo rafbílaeigendur geti hlaðið bíla sína. Ofan á bílageymslu eru bílastæði í sameign.
Geymsla er 7,9 m2 og er staðsett á 1. hæð á móts við bílageymslu.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1. hæð.
Lóð er gróin með grasflötum og framan og meðfram húsi að hluta eru bílastæði ásamt skýli fyrir ruslatunnur og flokkunartunnur.
Engin íbúð er ofan við þessa íbúð og einungis ein íbúð liggur að einum vegg þessarar íbúðar, þrjár hliðar íbúðarinnar eru því útveggir.
Hlutfall íbúðar í sameign allra er 2,70%.


Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún í síma 864-0061 / [email protected] 

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. jan. 2019
50.100.000 kr.
49.200.000 kr.
112 m²
439.286 kr.
27. júl. 2016
37.950.000 kr.
39.300.000 kr.
112 m²
350.893 kr.
12. maí. 2014
31.600.000 kr.
34.200.000 kr.
112 m²
305.357 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone