Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Urriðaholtsstræti 38

210 Garðabær

89.900.000 kr.

919.223 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509474

Fasteignamat

87.700.000 kr.

Brunabótamat

72.740.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
97,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 12. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Urriðaholtsstræti 38, 210 Garðabær, Íbúð 402. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 12. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson, löggiltur fasteignasali, og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Urriðaholtsstræti 38, íbúð 402, í Garðabæ.
Virkilega björt, rúmgóð og falleg 97,8 fm, 4ra herbergja íbúð á efstu hæð, þar af er sér geymsla. Bílastæði í snyrtilegri, upphitaðri bílageymslu. Fínar svalir og fallegt útsýni. Vandað minna staðsteypt fjölbýlishús, lyfta, byggt árið 2020 sem stendur í töluverðum landhalla niður til norðurs og inngangur í húsið er á annarri hæð sunnanmegin og keyrt inn í bílageymslu á jarðhæð norðanmegin.  Frábær staðsetning í Urriðaholtshverfinu þar sem stutt er út í náttúruna, skóla og verslanir.


Nánari lýsing:
Að innan skiptist íbúðin í forstofugang, eldhús, stofu, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Baðherbergi er flísalagt, upphengt wc, góð baðinnrétting sem gerir m.a ráð fyrir þvottavél/þurrkara, "Walk in" sturta með innbyggðum blöndunartækjum og glervegg.  Á gólfum er vandað harðparket. Í svefnherbergjum eru fataskápar en opnað hefur verið inn í þriðja svefnherbergið og það notað í dag sem borðstofa en auðvelt er að breyta því aftur til fyrra horfs og fataskápurinn er til.  Stór fataskápur er á forstofugangi. Eldhús og stofa í björtu og opnu rými. Smekkleg eldhúsinnrétting með vönduðum heimilistækjum, innbyggðum ísskáp/frysti/uppþvottavél, góðu skápaplássi og eyju. Úr stofu er útgengt á 7 fm svalir en svalarveggir eru klæddir með Lerki.
Á jarðhæð er fín sér geymsla og einnig sameiginleg hjóla/vagna geymsla. 
Sér bílastæði í bílageymslu á jarðhæð með rafhleðslustöð frá Ísorku. 

Lóðin er öll mjög snyrtileg.

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. nóv. 2020
34.250.000 kr.
57.900.000 kr.
97.8 m²
592.025 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum