Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
parhús

Dalsbrún 3

810 Hveragerði

92.900.000 kr.

578.456 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2309365

Fasteignamat

94.200.000 kr.

Brunabótamat

93.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
160,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu parhús við Dalsbrún 3, 810 Hveragerði.
Snyrtileg og falleg eign með stofu og eldhúsi saman í opnu rými, þremur svefnherbergjum, þvottahúsi, geymslu, baðherbergi og bílskúr.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, nýlegt baðherbergi, eldhúsinnrétting, gólfefni og fleira.
Þá er einnig nýlegur sólpallur með útgengi frá stofu.
Eignin er samtals 160,6m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands; þar af er bílskúrinn 45,5m².
Fasteignamat eignarinnar er kr. 94.200.000kr.- 

Sjá staðsetningu hér:


Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]


Lýsing eignar:
Forstofa flísar á gólfi, stór fataskápur.
Baðherbergi innrétting með handlaug, upphengt salerni, baðkar með sturtu, flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Þvottahús skolvaskur, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, hillueiningar.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergin eru með parket á gólfi.
Eldhús er opið og bjart. Eldhúsinnrétting með góðu skápa og skúffuplássi, bakarofn í vinnuhæð og pláss fyrir einfaldan ísskáp.
Stofan er björt, með útgengi út á aflokaða timburverönd.
Gólfefni eignarinnar eru parket og flísar.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð.
Eldhúsinnrétting er nýleg, baðherbergi var endurgert og allt þar inni nýlegt.
Nýlegt parket er á eigninni og timburverönd er nýleg.
Eignin er byggð úr forsteyptum einingum og viðhald því í lágmarki.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með  sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. apr. 2023
76.250.000 kr.
69.500.000 kr.
160.6 m²
432.752 kr.
16. júl. 2010
27.300.000 kr.
24.500.000 kr.
160.6 m²
152.553 kr.
17. júl. 2008
16.890.000 kr.
25.000.000 kr.
160.6 m²
155.666 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone