Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1959
106,2 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Laus strax
Lýsing
BJÖRT OG FALLEG 4 HERB. FJÖLSKYLDUVÆN ENDAÍBÚÐ MEÐ VESTUR SVÖLUM Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ - 105 REYKJAVÍK.
Samkvæmt skráningu HMS fasteignaskrá s er birt flatarmál eignarinnar 106,2 fm.
Um er að ræða 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð (tvær og hálf hæð í stigagangi) í steinsteyptu fjölbýlishúsi byggðu árið 1959.
Gengið er inn í anddyri/gang sem aðskilur vistarverur íbúðarinnar, hægra megin á ganginum eru tvö herbergi og stofan sem er innst, herbergið sem er næst ganginum var upprunalega teiknað sem borðstofa. Vinstra megin er eldhúsið og svo baðherbergið, eitt herbergi er í enda gangsins. Hægt er að ganga út á vestur svalir úr borðstofuherberginu. Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Anddyri/gangur: Parket á gólfi og fataskápar.
Stofa: Björt og mjög rúmgóð með glugga á tvo vegu, parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og falleg eldri innrétting með góðu skápaplássi, gott borðpláss og flísar á gólfi, stór borðkrókur með parketi sem er opinn í ganginn.
Svefnherbergin: Þrjú góð svefnherbergi með parketi á gólfum, öll nokkuð rúmgóð og fataskápar í tveimur. Útgangur út á vestur svalir úr einu herberginu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar með sturtuhengi og lítil innrétting, gluggi og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Sér 6 fm. geymsla með hillum fylgir í kjallara.
Sameignin er til fyrirmyndar og mjög snyrtileg, sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins.
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Gæludýrahald hefur verið í húsinu.
- Nýlega var stigagangur í sameign málaður og teppi endurnýjuð.
- Eignarhluti í Kleppsveg 24 er 16,91% en í heildarhúsinu, Kleppsveg 18-24 er hann 3,77%
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð í snyrtilegu umhverfi, stór sameiginlegur garður er á baklóðinni og gróið umhverfi, í göngufjarlægð er leikvöllur, leikskóli, skóli, sundlaug og ýmis þjónusta.
Stutt í útivistarsvæðið í Laugardalnum og frábærar göngu- og hlaupaleiðir á Laugarnestanganum.
Að sögn eigenda hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árum; Frárennslislagnir voru fóðraðar undir húsi fyrir árið 2014 og drenað í kringum gaflinn, ný svaladyr og gluggi í borðstofuherbergi sett árið 2016, en 2019-2020 var húsið múrviðgert og málað að utan, endurnýjað járn á þaki ásamt rennum og niðurföllum, tréverk yfirfarið og málað að utan. Árið 2022 var skipt um 4 glugga í íbúðinni og en í heild 80 glugga í húsinu.
Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf GSM: 896-3038 e-mail: [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. maí. 2012
19.200.000 kr.
21.500.000 kr.
106.2 m²
202.448 kr.
10. okt. 2007
18.240.000 kr.
22.400.000 kr.
106.2 m²
210.923 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026