Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Björnsson
Vista
atvinnuhúsnæði

Lindarbraut 4

840 Laugarvatn

795.000.000 kr.

237.101 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2503135

Fasteignamat

429.550.000 kr.

Brunabótamat

1.190.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
3353 m²
svg
28 herb.

Lýsing

Glæsilegt atvinnuhúnæði á góðum stað með mikla nýtingarmöguleika
Til sölu er Lindarbraut 4 á Laugarvatni, reisulegt og rúmgott atvinnuhúsnæði á besta stað með fjölbreytta möguleika til rekstrar, þjónustu, gisti- eða menntatengdrar starfsemi. Eignin stendur á bökkum Laugarvatns og er glæsilegt útsýni yfir vatnið. Eignin er samtals 3.353 fm og stendur á 5.977 fm leigulóð, sem skipulögð er sem viðskipta- og þjónustulóð. Í eigninni hefur fjölbreytt starfsemi verið rekin í gegnum tíðina, meðal annars Húsmæðraskólinn á Laugarvatni, starfsemi Íþróttaháskólans á Laugarvatni og Hótel Edda yfir sumartímann um árabil.

Um er að ræða eign með mikla möguleika fyrir öflugan rekstur og framtíðarnýtingu. 
Helstu kostir eignarinnar:
  • Stór og vel sýnileg eign á Laugarvatni 
  • 3.353 fm atvinnuhúsnæði með fjölbreyttu skipulagi 
  • 28 herbergi og fjölmörg skrifstofu-, kennslu- og geymslurými 
  • Hentar fyrir gistiþjónustu, skólastarf, skrifstofur, þjónustu eða atvinnustarfsemi 
  • Nýr dúkur á þaki frá 2023 
  • Fallegt útsýni og góð staðsetning 
Nánari lýsing
Húsið er byggt árið 1967, steinsteypt og á tveimur hæðum með kjallara. Ytra byrði er í ágætu ástandi, þó að ljóst sé að viðhaldi hefur að hluta verið frestað í gegnum tíðina.
Á efri hæðum og í kjallara er að finna fjölbreytt rými, meðal annars:
  • Skrifstofur og móttökurými.
  • Salir og matsalsaðstaða.
  • Tvenn iðnaðareldhús.
  • Skólastofur og vinnurými.
  • 28 tveggja manna herbergi með fataskápum og salernisaðstöðu.
  • Snyrtingar, sturtuaðstaða, geymslur og stoðrými.
  • Bílskúr og verkstæðisaðstaða í kjallarahluta.

Ástand og viðhald
Fyrir liggur að raflagnir, vatnslagnir og frárennslislagnir eru að stórum hluta upprunalegar. Gluggar og gler eru í ágætu heildarástandi. Nýr dúkur var lagður á þakið árið 2023. Rakaskemmdir eru til staðar á afmörkuðum svæðum eftir fyrri leka og eftirfylgni vegna þeirra er ólokið. Þá hefur einnig verið bent á raka í kjallara sem tengist hárri vatnsstöðu og leysingum, en fyrir liggja hugmyndir að úrbótum. 
 
Lóð og umhverfi
Eignin stendur á leigulóð og er lóðarleiga skráð kr. 539.000 á ári. Samningur um lóðina gildir til ársins 2074.
Lindarbraut 4 gæti hentað sérstaklega vel fyrir:
  • gisti- og ferðaþjónustu en Hótel Edda var í mörg ár með starfsemi í eigninni á sumrin.
  • skóla-, fræðslu- eða námskeiðsstarfsemi
  • heilbrigðis-, meðferðar- eða endurhæfingartengda starfsemi
  • skrifstofu- og þjónustukjarna
  • fjárfesta sem leita að stórri eign með þróunarmöguleika
Áhugaverð fjárfesting fyrir aðila sem leita að stórri eign með fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone